Knattspyrnudeild Vals hagnaðist um 85 milljónir króna á síðasta ári, aðeins er um að ræða rekstur meistaraflokks og 2 flokks, karla og kvenna. Viðskiptblaðið fjallar um málið.
Breiðablik, KR, FH, KA, Fylkir og Grindavík voru öll rekinn í tapi á síðasta ári. Tap FH var 17 milljónir króna á síðasta ári en tap Breiðabliks var milljón minna.
Taka skal með í reikninginn að rekstur Breiðabliks telur alla flokka félagsins og FH gefur aðeins upp verktakagreiðslur sínar en ekki allar launagreiðslur. Samkvæmt Viðskiptblaðinu og úttekt þeirra.
Valur á 100 milljónir króna í eigð fé en FH kemur þar á eftir og á 49 milljónir í eigið fé. Jón Rúnar Halldórsson skilur þannig við FH í góðum málum, hann hætti sem formaður knattspyrnudeildar FH á dögunum.
,,Rekstur Vals og FH er umsvifamestur íslenskra knattspyrnuliða. Tekjur Vals vegna meistaraflokka karla og kvenna og 2. flokks námu 360 milljónum króna á síðasta ári. Hjá FH námu tekjur meistaraflokkanna 350 milljónum króna, en þar af námu tekjur meistaraflokks karla 330 milljónum króna. Verulega dró saman milli tekna FH og Vals í fyrra. Í tilfelli FH lækkuðu tekjur milli ára um 20 milljónir króna en jukust um 140 milljónir króna hjá Val,“ segir í Viðskiptablaðinu.