Framtíð Mesut Özil hjá Arsenal er í mikilli hættu og gæti hann verið á förum frá félaginu í sumar.
Özil er alls ekki númer eitt í goggunnarröðinni hjá Unai Emery, stjóra Arsenal, sem tók við liðinu í sumar.
Emery hefur notað Özil mjög sparsamlega en Þjóðverjinn hefur einnig misst af mörgum leikjum vegna meiðsla eða veikinda.
Özil hefur misst af jafn mörgum leikjum vegna vandræða og hann hefur spilað.
Miðjumaðurinn hefur spilað 18 leiki í öllum keppnum á tímabilinu og hefur misst af jafn mörgum vegna meiðsla eða veikinda.
Hann sagðist vera veikur á laugardaginn og gat ekki spilað er arsenal vann 2-1 sigur á Huddersfield.
Özil er launahæsti leikmaður Arsenal en hann fær 350 þúsund pund í vikulaun.