Gonzalo Higuain gekk í raðir Chelsea í kvöld en hann kemur á láni frá Juventus út tímabilið.
Higuain er 31 árs gamall en hefur gert garðinn frægan með Real Madrid, Napoli og Juventus.
Hann er spenntur fyrir komandi verkefni og hefur alltaf verið spenntur fyrir að spila á Englandi.
,,Þegar tækifærið gafst að ganga í raðir Chelsea þá þurfti ég að taka það,“ sagði Higuain.
,,Þetta er lið sem mér hefur alltaf líkað við og er með mikla sögu og frábæran heimavölll.“
,,Þeir spila í ensku úrvalsdeildinni og það er deild sem mig hefur alltaf langað að spila í.“