Mario Balotelli, leikmaður Nice, horfði á leið Torino og Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.
Aðeins eitt mark var skorað í grannaslagnum en það gerði Cristiano Ronaldo fyrir heimamenn í Juventus.
Ronaldo steig á vítapunktinn í síðari hálfleik og tókst að koma boltanum framhjá Salvador Ichazo.
Ronaldo fagnaði svo marki sínu með því að stara á Ichazo og hoppaði svo inn í markvörðinn.
Balotelli sá þetta gerast og er hann viss um að rauða spjaldið hefði farið á loft ef hann hefði fagnað á sama hátt.
,,Ef ég hefði gert þetta, bleeeeessssss!“ skrifaði Balotelli og birti mynd þar sem hann er að horfa á leikinn.
Ronaldo sýndi andstæðingi sínum vanvirðingu og fékk gult spjald frá dómara leiksins en ekki rautt.