Manchester City hafði áhuga á að fá Lionel Messi frá Barcelona eftir að Pep Guardiola tók við félaginu árið 2016.
Þetta er haft eftir Al Mubarak, framkvæmdarstjóra City, sem vildi fá Messi í bláu treyjuna í Manchester.
Messi er talinn besti leikmaður heims af mörgum og tala einnig margir um hann sem besta leikmann sögunnar.
Samkvæmt fregnum dagsins bað City þjálfara sinn Guardiola um að ræða við Messi og gat hann þrefaldað laun sín í Manchester.
Guardiola og Messi þekkjast mjög vel en þeir unnu saman hjá Barcelona á sínum tíma og unnu allt mögulegt með félaginu.
,,Við báðum Guardiola um að tala við hann, við buðum upp á að þrefalda laun hans en hann játaði aldrei,“ sagði Mubarak.