Stærsta félag Englands, Manchester United hefur fengið umsókn sína um kvennalið samþykkt.
United mun nú eftir 13 ára frí mæta til leiks með kvennalið.
United fer í næst efstu deild en West Ham fær sæti í efstu deild.
United verður í deild með Charlton, Leicester, Lewes og Sheffield United.
Enska sambandið samþykkti beiðnina frá United um að setja kvennalið í gang á nýjan leik.