fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Neytendur

Sömu eigendur hér og úti: Við greiðum allt að 60 prósentum meira fyrir Domino’s pítsuna

Íslendingar vilja tilboð en Norðmenn lægra verð á matseðli – Osturinn ódýrari í Svíþjóð

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 19. febrúar 2017 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar greiða allt að 60 prósent hærra verð við stóra Domino’s pítsu af matseðli en neytendur í nágrannalöndunum þar sem íslenskir eigendur pítsukeðjunnar hafa verið að hasla sér völl á undanförnum misserum.

Pizza Pizza ehf., félag í meirihlutaeigu íslenska athafnamannsins Birgis Þórs Bieltvedt, á meirihluta í Domino’s á Íslandi sem og í Noregi og Svíþjóð. Domino’s rekur tuttugu og tvo pítsustaði hér á landi, tólf í Noregi og tvo í Svíþjóð en þar var fyrsti staðurinn opnaður í byrjun desember síðastliðnum. Þrátt fyrir að vera í eigu sömu aðila þá leiddi athugun DV í ljós að verulegur verðmunur er á pítsunum í þessum löndum. Framkvæmdastjóri Domino’s á Íslandi segir muninn skýrast af mörgum þáttum, meðal annars uppbyggingu matseðla sem sé mismunandi milli landa. Íslendingar séu tilboðsdrifnir kaupendur á meðan Norðmenn horfi til verðlags á matseðlum. Tilboðin séu fleiri og hagstæðari á Íslandi en sóttar pítsur af matseðli eru mun ódýrari í nágrannalöndunum. Hann segir að miðað við kauphegðun Íslendinga séum við í raun að fá pítsurnar á sambærilegu verði og annars staðar.

Hallar oft á íslenska neytendur

DV hefur að undanförnu birt ítarlegan verðsamanburð á ýmiss konar vörum sem fást hér á landi og sambærilegum vörum í nágrannalöndunum. Niðurstöðurnar voru nær allar á einn veg, að það er okrað á íslenskum neytendum. Ísland kom sömuleiðis nýverið fremur illa út úr nýlegri könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sem sýndi að Ísland er fjórða dýrasta land í Evrópu þegar kemur að innkaupum á matvöru, drykkjarvöru og tóbaki. Verðlag í þessu tilliti væri 30 prósent hærra hér en Evrópumeðaltalið. Aðeins Sviss, Noregur og Danmörk bjuggu við hærra verð á þessum vöruflokkum en Íslendingar.

DV lék því forvitni á að vita hvernig Ísland kæmi út í verðsamanburði innan pítsukeðjunnar með íslenska eignarhaldið.

Getur munað miklu á stakri pítsu

Við skulum taka sem dæmi stóra pítsu af matseðli Domino’s á Íslandi annars vegar og í Noregi og Svíþjóð hins vegar. Pítsan sem um ræðir er Bahamas-pítsa sem er með fjórar áleggstegundir og við gerum ráð fyrir því að pítsan sé sótt.

Bahamas-pítsan er á lægra verði í Noregi og Svíþjóð samanborið við Ísland. Íslendingar vilja frekar tilboð þar sem þeir fá meira fyrir minna á meðan frændur okkar rýna í verð á matseðlunum.
Íslendingar taki tilboðspakka Bahamas-pítsan er á lægra verði í Noregi og Svíþjóð samanborið við Ísland. Íslendingar vilja frekar tilboð þar sem þeir fá meira fyrir minna á meðan frændur okkar rýna í verð á matseðlunum.

Mynd: Dominos.is

Á Íslandi kostar Bahamas 3.245 krónur, en þess ber að geta að sendingarkostnaður er innifalinn í uppgefnu verði á matseðli, sem er ekki tilfellið í Noregi og Svíþjóð. En hægt er að óska eftir því að sækja pítsuna og lækkar verðið þá í 3.150 krónur. Athygli vekur að þú sparar aðeins 95 krónur á að sækja og því yrði mun hagstæðara fyrir Íslendinginn, sem ætlar að sækja pítsuna, að taka bara tvennutilboð og fá þar aðra pítsu og stóran skammt af brauðstöngum. En nánar af tilboðsfyrirkomulaginu síðar.

21,7 prósentum ódýrari í Noregi

Í Noregi, sem jafnan er þekkt fyrir allt annað en lágt verð eins og niðurstöður Eurostat sýna, kostar stök, sótt Bahamas-pítsa af matseðli 189 norskar krónur, eða sem nemur 2.533 íslenskum krónum. Þetta gerir 21,7 prósenta verðmun miðað við sótta pítsu.

Sendingarkostnaður, sem ekki er uppgefinn á matseðlinum í Noregi er 75 norskar krónur, eða ríflega 990 krónur íslenskar. Heimsend stök pítsa væri með því gjaldi orðin 8 prósentum dýrari í Noregi en á Íslandi.

Allt að 60 prósent ódýrari í Svíþjóð

Í Svíþjóð vill svo til að ekki er að finna Bahamas-pítsu á matseðli en algengt verð á sambærilegri stórri pítsu af matseðli er um 139–149 sænskar krónur, eða rétt um 1.700 til 1.800 krónur íslenskar. Það þýðir að verðmunur á sóttri pítsu á Íslandi og í Svíþjóð er á bilinu 55 til 60 prósent, Svíum í vil.

Sendingarkostnaðurinn sem ekki er uppgefinn á matseðlinum í Svíþjóð er 49 sænskar krónur, eða rúmar 600 krónur. Heimsend stök pítsa væri með því gjaldi þó enn um og yfir 40 prósent ódýrari í Svíþjóð

Ef litið er til Domino’s í Danmörku, sem tekið skal fram að er ekki í eigu Íslendinganna í Pizza Pizza ehf., er verðið enn lægra. Þar má finna stóra Bahamas-pítsu af matseðli á 69 krónur danskar, eða rúmar 1.100 krónur. Munar því allt að 96 prósentum á verði pítsunnar hér á landi og í Danmörku.

Þetta segir Domino’s

Framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi.
Birgir Örn Birgisson Framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi.

DV leitaði skýringa á þessum verðmun hjá Birgi Erni Birgissyni, framkvæmdastjóra Domino’s á Íslandi og segir hann að margir þættir, stórir jafnt sem smáir útskýri muninn. Gott sé að fá tækifæri til að útskýra þetta því viðskiptavinir hafi einhverjir verið að velta þessu fyrir sér.

Blaðamaður vissi fyrir það fyrsta ekki að sendingarkostnaður væri innifalinn í verði pítsu á matseðli hér en ekki á norsku og sænsku heimasíðunum. Úti er sendingarkostnaðurinn umtalsvert hærri sem taka verði með í reikninginn ef um er að ræða hráan samanburð milli matseðla. En líkt og bent er á í umfjöllun DV nemur hinn innifaldi sendingarkostnaður aðeins 95 krónum á íslenska matseðlinum. Dæmin miða því öll við að pítsan sé sótt.

Birgir Örn bendir síðan á að þættir eins og gengislækkun í Noregi í kjölfar olíuverðslækkunar og styrking íslensku krónunnar undanfarið skipti máli í svona samanburði.

Öðruvísi matseðlar og kauphegðun

Stór hluti skýringarinnar er síðan uppbygging matseðla milli þjóða sem helgast af kauphegðun og neyslumynstri neytenda í mismunandi löndum.

„Við gerðum allt öðruvísi matseðil í Noregi en á Íslandi. Við erum með miklu fleiri tilboð á Íslandi en í Noregi. Ástæðan er sú að við komumst að því að kauphegðun Norðmanna er meira drifin áfram af matseðilsverði en Íslendingar eru miklu drifnari áfram af tilboðsverði. Það er eiginlega algjör meirihluti á Íslandi sem kaupir tilboð af okkur,“ segir Birgir og nefnir sem dæmi þriðjudagstilboðið, tvennutilboðið og spartilboðin, sem séu gríðarvinsæl.

„Við erum ekki að gera þetta með sama hætti í Noregi. Íslendingar velja tilboð og þegar maður skoðar nettóniðurstöður í reikningum þá er pítsan yfirleitt ódýrari miðað við hvernig Íslendingar kaupa.“ Bendir hann á að Íslendingar sem sæki pítsurnar sínar taki nánast allir tilboð, sem miðað flest við að sótt sé. Matseðlarnir séu því mjög ólíkt uppbyggðir.

Hvað Svíþjóð varðar segir Birgir að ofan á leggist fleiri atriði.

Ódýrari ostur í Svíþjóð

„Það eru miklir verndarmúrar í kringum Ísland og Noreg, gagnvart osti sérstaklega. Í Svíþjóð eru þeir að borga helmingi lægra verð fyrir ostinn en við. Það er gríðarlega stór kostnaðarliður hjá okkur.“

Þá séu pítsurnar í Noregi aðeins stærri, pítsurnar í Svíþjóð aðeins minni, launakostnaður sé mismunandi á hverjum stað fyrir sig og þá þurfi Íslendingar að flytja inn talsvert af vörum um þrjú þúsund kílómetra leið.

„Þannig að það er margt sem kemur inn í þetta. Ef þú ert að reikna hvernig Íslendingar eru að kaupa þá eru þeir að fá þetta á sambærilegum kjörum. Íslendingar hafa keypt pítsur af okkur í 20 ár þannig að við höfum lært inn á þá en við erum enn að læra inn á þá í Noregi og Svíþjóð, þar sem þetta byrjaði bara fyrir stuttu.“

Af þessu má því ráða að hagstæðara er fyrir Íslendinga að kaupa sér meira af pítsu, jafnvel meira en þeir þurfa, í formi tilboðspakka á meðan Norðmenn og Svíar búa við færri tilboðspakka en hagstæðara verð á stökum pítsum af matseðli.

Íslenska pítsuútrásin

Eftirtektarverður árangur
Birgir Þór Bieltvedt

Birgir Þór Bieltvedt

Eftir uppgang Domino’s hér á landi á umliðnum árum hófst íslenska Domino’s-pítsuútrásin í Noregi árið 2014 en síðan hefur stöðunum þar fjölgað jafnt og þétt og viðtökurnar verið góðar. Árangur Birgis Þórs Bieltvedt og félaga hefur ekki farið fram hjá fjárfestum en árið 2015 keyptu lífeyrissjóðir og fagfjárfestar hlut í Pizza Pizza ehf. í gegnum framtakssjóðinn Eddu.

Í júní 2016 var síðan tilkynnt um kaup Domino’s Pizza Group, stærstu pítsukeðju Bretlands, á minnihluta í rekstri Domino’s á Íslandi, Noregi og Svíþjóð á 24 milljónir sterlingspunda. Með kaupunum innleystu íslenskir eigendur og áðurnefndir fjárfestar hluta af þeirri fjárfestingu sem lögð hafði verið í vöxt fyrirtækisins á Norðurlöndum á undanförnum árum.

Íslendingar héldu sem fyrr segir meirihlutaeign sinni í rekstrinum í öllum löndum, en breska fyrirtækið eignaðist á bilinu 45–49% í norrænu félögunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“