fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Neytendur

Tvíreykta Húsavíkurhangikjötið best í ár

Þetta er besta hangikjötið í ár að mati dómnefndar DV – Fjórtán læri smökkuð – Hnífjöfn keppni núna

Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. desember 2016 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvíreykta Húsavíkurhangikjötið frá Norðlenska bar sigur úr býtum í árlegri hangikjötsmökkun DV þar sem sex manna dómnefnd smakkaði og dæmdi fjórtán tegundir af íslenskum hangilærum frá fimm framleiðendum. Hangikjöt þykir ómissandi hluti af jólahaldi á ótal íslenskum heimilum og miðað við niðurstöður blindsmökkunar DV í ár er árgangurinn í ár einstaklega góður. Keppnin var hnífjöfn að þessu sinni og sjaldan verið eins mjótt á munum. Aðeins skildu 0,5 stig að fyrstu sex sætin í ár en á endanum var það tvíreykta Húsavíkurhangikjötið sem var hlutskarpast.

Hér má sjá tvíreykta Húsavíkurhangikjötið á diski. Þetta hangilæri hlaut hæstu einkunn dómara.
Sigurvegari á diski Hér má sjá tvíreykta Húsavíkurhangikjötið á diski. Þetta hangilæri hlaut hæstu einkunn dómara.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hnífjöfn keppni

Besta hangikjötið í ár hlaut 7,75 stig að meðaltali hjá dómnefndinni, af 10 mögulegum, en þetta er í fyrsta skipti sem tvíreykta Húsavíkurhangikjötið tekur þátt. Sambandshangikjötið, einnig frá Norðlenska, varð í öðru sæti með 7,66 stig og birkireykta hangikjötið frá SS hafnaði í þriðja með 7,58 stig. Svo mjótt var á munum á efstu lærunum að DV ákvað að notast við tvær aukatölur í meðaleinkunn á þeim efstu til að gefa gleggri mynd af stöðunni. Dómnefnd DV var sem fyrr skipuð kröfuhörðu fagfólki, en almennt virtust flestir sem komu að smökkun DV í ár sammála um að mikið væri af góðu kjöti í ár.

Brynjar bar kjötið fram fyrir dómnefndina sem smakkaði, skráði hjá sér athugasemdir og gaf einkunn.
Virða fyrir sér kjötið Brynjar bar kjötið fram fyrir dómnefndina sem smakkaði, skráði hjá sér athugasemdir og gaf einkunn.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Tíunda árið

Þetta er tíunda árið í röð sem DV framkvæmdir blinda bragðprófun á jólakjöti, en í ár var ákveðið að einblína á hangikjötið.

Líkt og undanfarin ár er smökkunin undirbúin og skipulögð af matreiðslumeistaranum Brynjari Eymundssyni á Höfninni. DV bauð framleiðendum sem tekið höfðu þátt áður að vera með að þessu sinni og lögðu þeir til kjötið í smökkunina með glöðu geði.

Sigurvegarar fyrri ára

2015: Kjarnafæði – taðreykt norðlenskt

2014: KEA

2013 – Fjarðarkaup

2012 – Iceland

2011 – Sambandshangikjötið

2010 – Húsavíkurhangikjötið

2009 – Hólsfjallahangikjötið og Húsavíkurhangikjötið

2008 – Húsavíkurhangikjötið

2007 – Hólsfjallahangikjötið

Brynjar sá um að matreiða kjötið eftir kúnstarinnar reglum. Allt hangikjötið var eldað með sama hætti nema aðrar leiðbeiningar væru teknar fram af framleiðendum á pakkningum. Hangikjötið var borið fram kalt, með laufabrauði og jólaöli á huggulegum veitingastað Brynjars, Höfninni á Geirsgötu 7.

Dómarar brögðuðu síðan á kjötinu án þess að vita nokkuð um hvaða tegund væri um að ræða eða frá hvaða framleiðanda. Gáfu þeir kjötinu síðan einkunn á bilinu 1 og upp í 10 og skrifuðu hnitmiðaðar athugasemdir við hvert og eitt, þar sem þeir tóku út þætti eins og útlit, áferð, reyk- og saltmagn og síðan auðvitað bragð – hver eftir sínu höfði.

F.v. á mynd. Margrét Ríkharðsdóttir, Margrét Sigfúsdóttir, Bjarki Hilmarsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Bjarni snæðingur og Svavar Halldórsson. Hjá þeim stendur Brynjar Eymundsson, eigandi Hafnarinnar.
Dómnefndin F.v. á mynd. Margrét Ríkharðsdóttir, Margrét Sigfúsdóttir, Bjarki Hilmarsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Bjarni snæðingur og Svavar Halldórsson. Hjá þeim stendur Brynjar Eymundsson, eigandi Hafnarinnar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Valinkunn dómnefnd

Dómnefndina í ár skipuðu Bjarki Hilmarsson, matreiðslumeistari á Hótel Geysi, Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans, Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Samtaka sauðfjárbænda, Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Hvolsvelli, Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumeistari, einnig þekktur sem Bjarni snæðingur, og Margrét Ríkharðsdóttir, matreiðslumeistari á Bryggjunni brugghúsi.

Brynjar sá um að manna dómnefndina líkt og fyrri ár. Kann DV dómnefndinni, Brynjari og starfsfólki Hafnarinnar bestu þakkir fyrir aðstoðina og fagleg vinnubrögð.

Telja eitt lærið hafa verið skemmt

Hér má sjá Hólsfjallahangikjötið sem leit eitthvað undarlega út og þeir sem að smökkun komu virtust sammála um að það hafi hugsanlega verið skemmt.
Eitthvað klikkaði Hér má sjá Hólsfjallahangikjötið sem leit eitthvað undarlega út og þeir sem að smökkun komu virtust sammála um að það hafi hugsanlega verið skemmt.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Að höfðu samráði við Brynjar við og dómnefndina vill DV taka fram að svo virðist sem eitt hangilæri hafi hugsanlega verið skemmt. Það var framlag Fjallalambs, Hólsfjallahangikjötið, sem oft hefur skipað sér í efstu sætin í keppninni en endaði í neðsta sæti nú. Að sögn Brynjars var ekkert á umbúðunum sem gaf til kynna að þær hefðu skemmst áður en kjötið var matreitt þannig að súrefni hafi komist að því. Lærið fékk sömu meðhöndlun og önnur í keppninni. En þegar kom að því að skera kjötið og bera það fram var augljóst að eitthvað var ekki eins og það á að vera. Að keppni lokinni gátu Brynjar og dómnefndin ekki ímyndað sér hvað gæti hafa orsakað þetta. Að utan leit hangilærið ekki grunsamlega út en þegar það hafði verið skorið kom í ljós brúngrá rönd í ytri lögum vöðvans og bragðið þótti ekki eðlilegt.


1. Tvíreykt Húsavíkurhangikjöt

Framleiðandi: Norðlenska
Rýrnun: 5,5%
Meðaleinkunn: 7,75

Margrét Ríkharðsd.: Fallegur litur, milt bragð, mjög gott. Salt og reykur jafnt.
Svavar: Svolítið úti um allt. Virkar vel og bragðið gott. Helst til salt.
Bjarni: Útlit ókei, bragðgott, flott saltmagn á móti reyk.
Ísólfur: Milt og gott bragð, útlit vel viðunandi. Mjúkur vöðvi.
Bjarki: Mjög gott, hæfilega feitt.
Margrét Sigfúsd.: Sárið ekki fallegt, bragðlítið.


Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

2. Sambandshangikjötið

Framleiðandi: Norðlenska
Rýrnun: 5%
Meðaleinkunn: 7,66

Margrét Ríkharðsd.: Fínt fitumagn, meyrt, fallegt, þetta er „winner.“
Svavar: Einstaklega fallegt og jafnt, verulega mjúkt og bragðgott.
Bjarni: Góð verkun, flott útlit og mjög bragðgott.
Ísólfur: Sterkt og gott hangikjötsbragð. Mjúkt og „djúsí.“
Bjarki: Lítur vel út, ekki feitt, áferð góð, aðeins salt.
Margrét Sigfúsd.: Sárið fallegt. Gott.


Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

3. SS birkireykt

Framleiðandi: SS
Rýrnun: 14%
Meðaleinkunn: 7,58

Margrét Ríkharðsd.: Mjög milt en gott.
Svavar: Mjúkt og bragðgott en litdauft.
Bjarni: Útlit ókei. Bragð í jafnvægi milli salts og reyks.
Ísólfur: Afar milt, passlega salt, viðunandi bragð. Þokkalega gott útlit.
Bjarki: Útlit og bragð gott.
Margrét Sigfúsd.: Falleg sneið. Gott.


Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

4. Fjallahangikjöt

Framleiðandi: Norðlenska
Rýrnun: 10,8%
Meðaleinkunn: 7,41

Margrét Ríkharðsd.: Fallegur litur, fitulítið, lítið reykbragð.
Svavar: Fallega bleikt, mjúkt og bragðmilt. Gott fyrir byrjendur.
Bjarni: Lítur vel út. Bragðgott.
Ísólfur: Lítur vel út, milt og gott bragð.
Bjarki: Lítur vel út, góð áferð lítið reykbragð.
Margrét Sigfúsd.: Fitulítið. Bragðmikið í lokin.


5. SS taðreykt

Framleiðandi: SS
Rýrnun: 19,1%
Meðaleinkunn: 7,33

Margrét Ríkharðsd.: Fitumikið, fínt reykbragð. Gott.
Svavar: Gamaldags, flott útlit og frábært bragð.
Bjarni: Útlit gamaldags og flott, vantar reyk á móti salti.
Ísólfur: Mjög milt og gott bragð. Gott reykbragð, útlit í lagi og passlega feitt.
Bjarki: Útlit gott, stíft, aðeins salt.
Margrét Sigfúsd.: Fullmikil fita inni á milli.


6. Norðlenskt kofareykt

Framleiðandi: Kjarnafæði
Rýrnun: 7%
Meðaleinkunn: 7,2

Margrét Ríkharðsd.: Fínt fitumagn. Gott. Mikið salt.
Svavar: Milt og bragðgott. Fyrirtaks barnakjöt.
Bjarni: Útlit gott, verkun ókei. Mjög gott bragð.
Ísólfur: Bragðmilt, passlegt saltbragð, laust í sér.
Bjarki: Lítur vel út, safaríkt og gott.
Margrét Sigfúsd.: Fallegt, passleg fita. Ekki gott.


7. Taðreykt norðlenskt

Framleiðandi: Kjarnafæði
Rýrnun: 17,5%
Meðaleinkunn: 6,8

Margrét Ríkharðsd.: Fitulítið, magurt, fínn reykur.
Svavar: „Original“ áferð og gott eftirbragð.
Bjarni: Fitulítið, útlit virkar þurrt, bragð í lagi.
Ísólfur: Mjög milt og gott hangikjötsbragð, fallegt útlit, nær fitulaust.
Bjarki: Ekki feitt, þurrt en bragðgott.
Margrét Sigfúsd.: Mjög magurt, alveg bragðlaust.


8.–9. Fjarðarkaup

Framleiðandi: Kjarnafæði
Rýrnun: 9,1%
Meðaleinkunn: 6,5

Margrét Ríkharðsd.: Mætti vera meiri reykur. Meira salt en reykur.
Svavar: Fallegur litur en bragðdauft. Of salt.
Bjarni: Þurrt útlit en „djúsí“. Gott bragð.
Ísólfur: Fínt hangikjötsbragð, passlega salt, útlit viðunandi.
Bjarki: Aðeins salt.
Margrét Sigfúsd.: Ágætt en ekkert spes.


8.–9. KEA

Framleiðandi: Norðlenska
Rýrnun: 10,2%
Meðaleinkunn: 6,5

Margrét Ríkharðsd.: Fitumikið, mjög gott. Gott jafnvægi í salt og reyk.
Svavar: Bragðsterkt en mjúkt.
Bjarni: Útlit lala, bragð í lagi. Út með hækil!
Ísólfur: Gott bragð, svolítið feitt en þó ekki of.
Bjarki: Ekki mikið reykbragð. Lítur vel út, salt.
Margrét Sigfúsd.: Fullmikil fita, bragðlítið en gott.


10. Íslandslamb taðreykt

Framleiðandi: Ferskar kjötvörur
Rýrnun: 14,2%
Meðaleinkunn: 6,0

Margrét Ríkharðsd.: Vantar mýkt og meira bragð.
Svavar: Áferðarfallegt en bragðlítið.
Bjarni: Útlit gott, vantar kannski meiri fitu, þurrt.
Ísólfur: Bragðlítið og karakterlaust. Dökkt og gróft.
Bjarki: Þurrt og stíft, ekki feitt.
Margrét Sigfúsd.: Safaríkt og bragðgott.


11. Vopnafjarðarhangikjöt

Framleiðandi: Kjarnafæði
Rýrnun: 6,8%
Meðaleinkunn: 5,8

Margrét Ríkharðsd.: Fínt fitumagn. Kraftmikið í byrjun, en bragð fljótt að dofna.
Svavar: Góð fylling og bragð með mýkt. Aðeins of salt.
Bjarni: Verkun og útlit svona og svona.
Ísólfur: Útlit í lagi, aðeins feitt, saltbragð. Þó ekki vont.
Bjarki: Laust í sér og salt.
Margrét Sigfúsd.: Ekkert sérstakt.


12. Húsavíkurhangikjöt

Framleiðandi: Norðlenska
Rýrnun: 12,9%
Meðaleinkunn: 5,5

Margrét Ríkharðsd.: Fallegur litur. Fitulítið, lítið reykbragð.
Svavar: Bragðmikið, ekta og fallegt. Sveitalegt og „original“ yfirbragð. Helst til salt.
Bjarni: Útlit lala, verkun ókei. Bragð í lagi. Þurrt.
Ísólfur: Lítur nokkuð vel út, saltbragð, fullt sterkt. Gróft.
Bjarki: Lítið reykbragð, dökkt, salt og stíft.
Margrét Sigfúsd.: Afar fitulítið. Gróft og bragðdauft.


13. Hagkaup – minna salt

Framleiðandi: Ferskar kjötvörur
Rýrnun: 21%
Meðaleinkunn: 4,7

Margrét Ríkharðsd.: Ljóst, bragðlítið.
Svavar: Mætti vera bragðmeira og mýkra.
Bjarni: Vantar fitu, ekki spennandi. Vont.
Ísólfur: Full milt, fitusnautt, vantar meira bragð. Virðist lítið reykt.
Bjarki: Virkar þurrt, bragð gott.
Margrét Sigfúsd.: Afar ljóst, ekki gott.


14. Hólsfjallahangilæri taðreykt (*)

Framleiðandi: Fjallalamb
Rýrnun: 4,1%
Meðaleinkunn: 4,2

Margrét Ríkharðsd.: Gráleitt, ekki fallegt, skrítið bragð, mikið salt.
Svavar: Ójöfn söltun og ekki nógu fallegt.
Bjarni: Vond verkun, útlit vont, þurrt og ekki gott bragð. Of salt.
Ísólfur: Sérkennilegt, ekki gott hangikjötsbragð. Frekar ljótt útlit og vart reykt í gegn.
Bjarki: Ljótt og stíft. Dökkt, grátt utan með. Ekki gott og skrítin áferð.
Margrét Sigfúsd.: Mislitt kjöt. Bragðgott.

(*) Athugasemd: Dómnefnd og Brynjar telja að líklega hafi hangilærið frá Fjallalambi verið skemmt.


Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“