Eyjólfur Pálsson í Epal hafnar því að hærri álagning liggi að baki verðhækkun Ró -stól frá Fritz Hansen
„Þegar vara kemur á markað er algengt að fyrirtækin selji hana á dúndurlágu verði. Við gerðum það líka. Svo líður þessi tími og verðið frá framleiðanda hækkar,“ segir Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal.
Á Facebooksíðu Epal birtir viðskiptavinur verslunarinnar mynd af tveimur bæklingum frá versluninni, þar sem sama varan er auglýst til sölu. Að sögn er um að ræða tveggja ára gamlan bækling, þar sem Ró stóll frá Fritz Hansen kostar 399 þúsund krónur. Í nýjum bæklingi er stóllinn auglýstur til sölu á 495 þúsund krónur. Þarna munar tæplega 100 þúsund krónum í verði.
„Hver er ástæðan fyrir þessari verðhækkun? Ég velti þessu fyrir mér þar sem sem krónan hefur styrkst þannig að innflutningsgengið er mun hagstæðara jafnframt sem verðbólgan er lítil.“ skrifar viðskiptavinurinn.
DV hafði samband við Epal til að spyrjast fyrir um þessa hækkun. Eyjólfur hafði ekki séð innleggið, þegar DV ræddi við hann, en hafði skýringar á reiðum höndum þegar hann sá hvernig í pottinn var búið. Hann segir að fyrst þegar vara komi á markað sé hún gjarnan seld á kynningarverði frá framleiðanda til verslana. Það verð hækki síðan gjarnan.
Eyjólfur segir að Epal kappkosti að bjóða vörur sínar á samkeppnishæfu verði. Markmiðið sé að vörur í Epal kosti ekki meira en sama vara kosti út í búð í því landi sem hún er framleidd. Með þessu fylgist þeir grannt. Hann nefnir sem dæmi borðlampa frá Louis Poulsen. Hann kosti í Epal rífleag 39 þúsund krónur, miðað við gengi dagsins, en kosti í Danmörku um 50 þúsund krónur.
„Við höfum rekið verslunina á sömu kennitölu í 41 ár og ákváðum að selja frekar meira magn á lægra verði. Við það höfum við haldið okkur.“