fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Matur

Hart deilt um orð Baltasars: „Ef ég borga manni fyrir að drepa vin minn, er ég ekki jafn sek og leigumorðinginn?“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 28. desember 2018 11:31

Veganistar deila um ábyrgð Baltasars.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nei. Ég drep ekki dýr. Það er ekki í mér,“ segir leikstjórinn Baltasar Kormákur í morgunþætti Hrafnhildar Halldórsdóttur en bætir við að hann borði samt dýr. „Eins og fólk heldur að ég sé mikð alpha-male, og ég er það kannski að ákveðnu leiti, en það er bara svona. Ég hef farið einu sinni eða tvisvar í veiði og það gerði ekkert fyrir mig.“

Þessi orð Baltasars hafa vakið upp deilur í hópi grænkera á Íslandi, Vegan Ísland, en Guðfinna Kristinsdóttir stofnar þráð innan hópsins og spyr hvort fyrirsögn greinarinnar á vef RÚV, „Ég drep ekki dýr“, sé ekki villandi þar sem Baltasar segist síðan elska að elda rjúpur. Það þarf vart að taka það fram að grænkerar, eða veganistar, eru alfarið á móti dýradrápum og illri meðferð á dýrum.

Birna Eik Benediktsdóttir telur fyrirsögnina ekki villandi þar sem Baltasar sér ekki um að drepa dýrin sjálf. Upphefjast rökræður á milli hennar og Guðfinnu sem eru alls ekki sammála um merg málsins.

„Er maður ss ekki samsekur ef maður eldar dýrin? Er þetta ekki rosa aftenging að geta sagt að „ég drep ekki dýr, ég elda þau bara“?“ spyr Guðfinna og Birna svarar um hæl: „Ég er ekkert endilega að leggja mat á hvað hann er að meina, virðist hann bara hafa sagt þetta svona. langar ekki að leggja mat á sekt neins eða sakleysi.“

Þá líkir Guðfinna þessu við kaup á úlpum sem skreyttar eru með dýrafeld.

„Við þurfum ekki að leggja mat á þetta siðferðislega, en ef ég td kaupi úlpu með feld, er ég ekki að styðja við dráp á sléttuúlfum?“

Hitler drap engan – aðrir sáu um það

Lilja Magnúsdóttir skerst í leikinn og skipar sér í fylkingu með Birnu.

„Það er ekki verið að ræða það í þessu viðtali hvort hann sé með eða á móti drápum, heldur hvort hann hafi gaman af veiðum og hann segir að veiðar séu bara ekkert fyrir sig en hann er samt ekkert á móti þeim samt.“ Píratinn Vala Árnadóttir tekur hins vegar upp hanskann fyrir Guðfinnu og segir engan mun á að drepa dýr og að njóta afurða dýra. „Það er enginn munur á því að drepa dýr og að borða dýr sem annar drepur, ábyrgðin er sú sama, það sjá allir nema Baltasar og aðrar kjötætur.“

Berglind Guðbrandsdóttir tekur annars konar dæmi.

„Ef ég borga manni fyrir að drepa vin minn, er ég ekki jafn sek og leigumorðinginn? Hvernig færi það í dómstólum? Ansi viss um að ég myndi enda bakvið lás og slá,“ segir hún og Helga Lilja skýtur inn í: „Samkvæmt lögum er ég jafn sek og leigumorðingi ef ég ræð hann til að taka líf einhvers… just saying.“

Borgar Þorsteinsson fer með dæmið alla leið og grípur innblástur úr seinni heimsstyrjöldinni. „Hitler drap engan…….aðrir sáu um það . Hræsni.“

Ekki uppbyggileg umræða

Búi Þór Birgisson er hins vegar ánægður með Baltasar og segir hann á réttri braut í átt að veganisma.

„Hann drepur ekki, bara borðar, sé ekkert athugavert við það, fyrsta skrefið í rétta átt er það ekki.“

Þröstur Thorarensen segir innleggið í hópinum lykta hins vegar af öfgaveganisma og segir umræðuna langt því frá að vera uppbyggilega.

„Ég er ekkert endilega bara að gagnrýna póstinn sjálfan einungis heldur umræðuna hér í kring — ég held að við séum öll sammála, en þetta er dottið í smá svona „vælu“ gír sem gerir ekkert nema stefna fólki gegn hvoru öðru þrátt fyrir að deila svipuðum skoðunum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
02.08.2025

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð
Matur
19.07.2025

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi
Matur
16.07.2025

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi
Matur
18.04.2025

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa
Matur
17.04.2025

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum
Matur
05.02.2025

„Það vantar meiri kærleik!“

„Það vantar meiri kærleik!“
Matur
23.01.2025

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn