fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

VON Mathús: Ljúfar stundir í hjarta Hafnarfjarðar

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 26. janúar 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingahúsið VON Mathús var opnað af þeim Einari Hjaltasyni og Kristjönu Þuru í Hafnarfirði árið 2015 og hefur reksturinn gengið vonum framar. Einar er sannkallaður reynslubolti og margrómaður matreiðslumaður sem útskrifaðist af Grillinu á Hótel Sögu og kom að opnun háklassa veitingastaðar í London sem hlaut Michelin-stjörnu. Kristjana hefur einnig verið viðloðandi veitinga- og hótelgeirann í um tíu ár og svo er hún Hafnfirðingur í húð og hár. „Við urðum tveggja ára í desember og við gætum ekki verið ánægðari með þróun staðarins og erum við alltaf að breyta og bæta,“ segir Kristjana. Við vorum að opna aftur, eftir smá vetrarfrí. En við lokum fyrstu tvær vikurnar í janúar. Þannig gefum við okkur og starfsfólki tíma til þess að sinna fjölskyldunni, skipuleggja og sinna fleiri verkefnum, eftir desemberkeyrsluna.“

Úrvals fiskur
Úrvals fiskur

Allt það ferskasta

Matseðill VON Mathúss á kvöldin og í hádeginu er alla jafna stuttur og tekur ávallt mið af því sem er ferskast hverju sinni, hvort sem um fisk eða grænmeti er að ræða. Matseðlinum er svo breytt á 2–3 mánaða fresti og allt hráefni er í mestu mögulegu gæðum.

Fiskinn fær VON Mathús frá Hafinu, en þeir eru nú staðsettir við höfnina í Hafnarfirði og er því ekki langt að sækja fiskinn. Kjötið fá þau frá SS og er því kjöt og fiskur alltaf íslenskt.

„Við leggjum upp úr því að nota ferskt íslenskt hráefni og er allt unnið frá grunni. Enn fremur bökum við okkar eigið brauð alla morgna, sem hefur vakið mikla lukku,“ segir Kristjana. Ásamt sérstökum barnaréttum á matseðlinum er hægt að fá alla rétti í skammtastærðum fyrir börn og unglinga. Einnig er hægt að fá grænmetis- eða veganrétti bæði í aðalrétt eða samsettum seðlum.

Laxavafflan
Laxavafflan

Laugardagar eru fjölskyldudagar

Á laugardögum í vetur fæst ekta bröns í hádeginu, hvort sem um er að ræða hádegisverðarplatta eða fjölskyldubröns. Að auki er boðið upp á vöfflur með ýmsu spennandi meðlæti og hefur laxavafflan verið langvinsælust á brönsseðlinum, að sögn Kristjönu.

Vöffludeigið er vegan og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig er hægt að fá fisk dagsins. Brönsinn væri varla fullkomnaður ef ekki væri boðið upp á ferskar mímósur eða dásamlega heimagert, súrsætt límonaði.
Brönsinn er hægt að fá á laugardögum frá 11.30–14.00 og mælt er með borðapöntun.

Alla þriðjudaga–föstudaga, milli kl. 11.30–14.00, er boðið upp á súpu, salat, ferskan fisk og kjötrétt dagsins, sem auglýst er daglega á Facebook-síðunni. „Við erum mjög virk á samfélagsmiðlunum okkar og þar er hægt að fylgjast með okkar daglegu verkum,“ segir Kristjana. Þá er boðið upp á það ferskasta sem fæst hverju sinni og tekur hádegismatseðillinn mið af því.

Hafnarfjörður heldur áfram að lifna við

„Það er dásamlegt að sjá mannlífið blómstra hér í miðbænum í Hafnarfirði, eins og það hefur gert hér undanfarin ár. Ný kaffi- og veitingahús, Bæjarbíó og fleira skemmtilegt glæða bæinn miklu lífi og hér er gaman að búa og starfa,“ segir Kristjana. Hér eru líka ætíð næg bílastæði og Hafnarfjörðurinn er að auki svo fallegur og notalegur staður. Á VON Mathúsi er fallegt útsýni yfir smábátahöfnina, sanngjarnt verð og mikil gæði,“ segir Kristjana Þura að lokum.

Brauð er bakað á staðnum á hverjum morgni.

Brauð bakað á staðnum á hverjum morgni
Brauð bakað á staðnum á hverjum morgni

VON Mathús er til húsa að Strandgötu 75, 220 Hafnarfirði.
Opnunartími: Þriðjudaga–laugardaga frá 11.30–14.00 og 17.30–22.00.
Lokað sunnudaga og mánudaga. (Opið sunnudaga í júní, júlí og ágúst).
Sími: 583-6000
Email: info@vonmathus.is

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu VON Mathúss, vonmathus.is, og á Facebook-síðunni. Einnig eru þau með Instagram-síðuna VON Mathús&Bar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum