fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Algengustu fantasíur karla og kvenna

Kanadísk rannsókn varpar ljósi á kynóra kynjanna – Reynslusögur Íslendinga

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 22. janúar 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðríður er grandvör kona á fimmtugsaldri sem vinnur í banka. Á daginn klæðist hún óaðfinnanlegum drögtum og fjarsýnisgleraugun hanga jafnan framan á henni í fínlegri gylltri keðju. Tvisvar á ári hittir Guðríður spænskan fyrrverandi kærasta sinn í evrópskri borg þar sem þau njóta samvista, samræðna og samræðis.

Láta ekkert trufla sig

Þess á milli er hún sjálfri sér næg, eða kannski ættum við að segja hér um bil, því hún notar reglulega titrara þegar hún á ástarstundir í einrúmi. Þegar Guðríður elskar sjálfa sig notar hún kynóra til að æsa sig upp. Hún hugsar oftast um kynlíf með öryggisverðinum sem kemur alla daga í lok vinnudags og læsir bankanum. Manninn þekkir hún nákvæmlega ekki neitt en hún hugsar endurtekið um þau tvö í hamslausum ástarleik á ýmsum húsgögnum í bankanum. Í sumum útgáfum óranna uppgötva þau að samstarfsfélagi liggur á gæjum – þau láta það síst trufla sig.

## Algeng fantasía
Guðríður er afskaplega eðlileg, og fantasían hennar fellur meira að segja í flokk þeirra sem eru algengastar hjá konum. Jú viti konur! Það er búið að rannsaka hvers kyns fantasíur eru algengastar hjá konum og körlum. Í kanadískri rannsókn sem gefin var út 2014 í Journal of Sexual Medicine var reynt að varpa ljósi á algengi ýmiss konar kynóra. Rúmlega 1.500 fullorðnir einstaklingar svöruðu spurningalista á netinu – en listinn kallast Wilson’s Sex Fantasy Questionnaire og hefur verið notaður til að rannsaka eðli kynóra frá því að hann kom út árið 1978. Í útgáfunni sem rannsakendur lögðu fyrir voru 55 fullyrðingar sem svarendur voru beðnir um að taka afstöðu til.

Hér eru dæmi um fullyrðingar af listanum:

Ég hef látið mig dreyma um kynlíf með ókunnugri manneskju

Ég hef látið mig dreyma um kynlíf á opinberum stað

Ég hef látið mig dreyma um endaþarmskynlíf

Ég hef látið mig dreyma um kynlíf með dýri

Svarandur áttu að taka afstöðu á skala sem spannaði 1–7, þar sem 1 táknaði ósammála og 7 mjög sammála.


Algengustu fantasíur kvenna voru eftirfarandi:

Rómantískt kynlíf

Kynlíf á óvenjulegum stað

Að taka þátt í munngælum

Að veita karlmanni munngælur

Að vera fróað af kynlífsfélaga

Að fróa kynlífsfélaga

Kynlíf með vini eða kunningja

Að láta drottna yfir sér í kynlífi

Kynlíf á opinberum stað

Kynlíf með þremur eða fleiri í einu


Hér er svo það algengasta sem karlana dreymdi um:

Að veita eða þiggja munngælur

Kynlíf með tveimur konum

Kynlíf með öðrum en maka

Kynlíf á óvenjulegum stað

Að horfa á tvær konur elskast

Að hafa sáðlát inn í kynlífsfélaga

Kynlíf á rómantískum stað

Að veita konu munngælur

Að fróa konu

Kynlíf með þremur eða fleiri konum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum