fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Verðlaunaður gæðalax frá Fiskási

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 22. mars 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Fiskás er staðsett við tvær flottustu laxár landsins, Ytri- og Eystri-Rangá. Starfsemin hófst sumarið 2010 með reykingu á laxi. Í nóvember sama ár opnuðu eigendur fyrirtækisins fiskbúð á Hellu. Torfi Sigurðsson, framkvæmdastjóri og einn af þremur eigendum fyrirtækisins, segir Fiskás hafa það að markmiði að þjónusta laxveiðimenn á Íslandi og hafa laxveiðimenn, bæði íslenskir og erlendir, sem veiða í Rangánum notað þjónustuna og verið mjög ánægðir með vörurnar sem Fiskás býður upp á að sögn Torfa. „Fyrirtækið þjónustar einnig heimafólk og fyrirtæki á Suðurlandi á ferskum fiski sem keyptur er á markaði,“ segir Torfi.

Viðurkenning frá Gordon Ramsay

„Það er gaman að segja frá því að sælkerakokkurinn Gordon Ramsay gaf okkur fyrstu einkunn fyrir reykta laxinn okkar,“ segir Torfi. Að sögn Torfa borðaði Gordon heilt flak af reyktum laxi frá Fiskás á degi hverjum þegar hann var við veiði á svæðinu. Torfi er afar ánægður með hversu vel Gordon líkaði laxinn. „Það er óhætt að segja að það sé öflug viðurkenning þegar heimsklassa sælkerakokkur leggur blessun sína og rúmlega það yfir vöru sem maður er að framleiða,“ segir hann.

Bæði með ferskfisk og reyktan fisk

Hjá Fiskási starfa fjórir til sex starfsmenn eftir vertíðum. „Við erum að reykja fisk yfir sumarmánuðina og fram að áramótum en þá minnkar örtröðin örlítið. Hins vegar er mikið að gera allan ársins hring í ferskum fiski hjá okkur þar sem við erum að sinna hótelunum og skólunum á svæðinu með slíkar vörur,“ segir Torfi.

Sem fyrr segir þá rekur Fiskás verslun undir sama nafni sem er opin alla virka daga frá kl. 10 –17. Tilvalið er fyrir ferðalanga og sumarhúsaeigendur í grennd að renna við í versluninni og ná sér í úrvals fiskmeti.

Fiskás ehf l Dynskálar 50 I 850 Hella I Símanúmer: 546-1210 og 651-1210 www.fiskas.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum