fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Staðgóður og hollur heimilismatur í hádeginu

Kynning

Höfðakaffi stendur fyrir sínu

Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 3. febrúar 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höfðakaffi hefur til fjölda ára boðið upp á staðgóðan og næringarríkan heimilismat í hádeginu. Í hverri viku er birtur nýr matseðill á vefsíðu Höfðakaffis og á hverjum degi er hægt velja á milli súpu í forrétt og kjöt- eða fiskréttar í aðalrétt. „Við erum ýmist að senda mat í bökkum til viðskiptavina og svo erum við með matstofu hér á staðnum,“ segir Ragnar Sverrisson, annar eigenda Höfðakaffis. Bakkamat með súpu og aðalrétti er hægt panta í síma 587-6075 á milli kl. 8.15–10.15.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Girnilegur matseðill

„Auk aðalréttanna tveggja erum við með fimm fasta sérrétti sem eru alltaf á matseðlinum og við sendum í bökkum. Í matsalnum er þá boðið upp á einn rétt til viðbótar sem við veljum hvern dag. Sérréttaseðillinn hljómar þá svona: Grillað kjúklingalæri með meðlæti, grænmetisbakki með pasta, BBQ hamborgari, samloka eða pítsa og svo djúpsteiktur fiskur með öllu tilheyrandi. Að auki sjáum við um mötuneyti fyrir fyrirtæki. Um er að ræða svokallaðan kantínumat, þar sem skammtað er á staðnum,“ segir Ragnar.

Staður með skemmtilega sögu

Starfsemi Höfðakaffis byggist aðallega á því að selja hádegismat og þjónusta önnur fyrirtæki með hádegismat. Því er eingöngu opið í hádeginu. Höfðakaffi var upphaflega stofnað árið 1978 af Sigursæli Magnússyni, en hann er betur þekktur sem Sæli í Sælakaffi. Þá var Ártún í sama húsi, en Ártún var eitt sinn vinsæll skemmtistaður þar sem dansaðir voru gömlu dansarnir. Ragnar og Oddný Guðnadóttir keyptu Höfðakaffi árið 1990 og hafa rekið staðinn síðan. „Eftir að við tókum við hefur starfsemin bókstaflega farið á flug. Við byrjuðum á að afgreiða um hundrað matarpantanir á dag og erum nú komin með upp undir átta hundruð á dag,“ segir Ragnar.

Stöðugur rekstur og traust starfsfólk

Höfðakaffi hefur verið í stöðugum rekstri og staðið fyrir sínu öll þessi ár. Alltaf hefur gengið mjög vel að halda bæði starfsfólki og fastakúnnum. „Hér starfa um átta manns. Okkur hefur haldist vel á fólki og er um að ræða frábært og traust starfsfólk sem hefur verið lengi hjá okkur. Hún Þóra Gunnarsdóttir hefur til dæmis verið hjá okkur í 27 ár, allt frá upphafi og verður hér líklega þar til hún hættir að vinna. Einnig erum við með marga fastakúnna og fyrirtæki sem koma hingað oft eða panta mat hjá mér reglulega,“ segir Ragnar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Höfðakaffi er staðsett að Vagnhöfða 11, 110 Reykjavík
Opið er í veitingasalnum kl: 11.30–13.30
Sími: 587-6075
Email: hofdakaffi@internet.is
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Höfðakaffis

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum