fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Kjallaravandamál

Sum vandamálin algengari en önnur – Ýmislegt forvitnilegt í kjallaranum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 26. febrúar 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki ofsögum sagt að við eigum mörg orð og orðatiltæki um líffærakerfi okkar og má svo sem segja að þegar við erum að gefa þessum líkamspörtum nafn séum við iðulega að gera það af nokkurri alúð. Snilldin er mismikil og er orðið kjallari kannski ekki það besta, en þar er verið að vísa til innri og ytri kynfæra kynjanna. Það er augljóst að einstaklingar geta glímt við ansi mörg vandamál þar, en sum eru algengari en önnur.

Klamydía og kynfæravörtur

Það er ákveðinn munur á milli kynja og þá eru vandamálin líka bundin að vissu leyti við aldur eða aldursskeið. Þegar við horfum til karlanna þá má segja að hjá þeim sem yngri eru sé oftar en ekki um að ræða óþægindi við þvaglát, verki, sviða, kláða, útbrot eða jafnvel útferð sem í mörgum tilvikum má rekja til sýkinga. Þar koma til einfaldari þvagfærasýkingar, sveppasýkingar í húð eða undir forhúð, bólgur í blöðruhálskirtli en einnig kynsjúkdómar eins og klamydía, herpes eða kynfæravörtur svo dæmi séu tekin.

Mikilvægt er að átta sig á því að þrátt fyrir að vera smitaður af kynsjúkdómi líkt og klamydíu geta bæði karlar og konur verið einkennalaus. Því er afar mikilvægt að láta skoða reglubundið fyrir slíku, sérstaklega ef skipt er um maka, en það á við um allan aldur í raun.

Ekki eins mikil reisn

Hjá eldri körlum er meira um þá kvörtun að þvaglát séu að verða tregari sem orsakast oftar en ekki af stækkuðum blöðruhálskirtli. Sumir fá veruleg óþægindi af og jafnvel þvagteppu, því getur þurft að hefla og minnka umfang kirtilsins til að létta á þvaglátum. Ekki má gleyma því að tíðni blöðruhálskirtilskrabbameina eykst með aldri og er mikilvægt að vera vakandi fyrir því. Þá upplifa karlar á efri árum að ekki sé eins mikil reisn yfir þeim og áður var sem getur verið afar viðkvæmt mál, en þarf að ræða því úrræðin eru orðin ansi mörg.

Þvagleki og sýkingar

Konurnar glíma við svipuð vandamál að mörgu leyti og karlarnir en þó er munur á tíðni vandamála og orsök. Líklega er ein algengasta orsök fyrir óþægindum hjá konum þvagfærasýking, en þær eru mun líklegri til þess en karlar þar sem þvagrásin er styttri. Það eru þó ýmsar aðrar ástæður fyrir tíðari sýkingum og má þar nefna hormónastarfsemi, en þekkt er að eftir tíðahvörf finna konur oftsinnis meira fyrir óþægindum, þurrkur og breytingar á slímhúðinni hafa þar sitt að segja. Þá hef ég áður komið inn á það að þvagleki er tíðara vandamál meðal kvenna og getur komið fram á öllum aldri en þó sérstaklega eftir barnsburð og verða konur að vera meðvitaðar og gera reglubundnar grindarbotnsæfingar.

Kynsjúkdómar

Útferð, kláði og sviði er býsna algengt umkvörtunarefni einnig og þar geta legið til grundvallar mjög margar orsakir. Algengast er að einhvers konar truflun verði á bakteríuflóru í sköpunum sem stuðlar að ofvexti á annaðhvort bakteríum eða sveppum sem aftur skapa þau einkenni sem konur finna fyrir. Ekki má þó gleyma öðrum sjúkdómum og ástæðum, sér í lagi ef einföld meðferð dugar ekki. Þar koma til að sjálfsögðu sömu kynsjúkdómar og hjá körlunum og verða konur að láta skoða sig ekki síður en karlarnir sé nokkur grunur um slíkt.

Illkynja sjúkdómur

Konur eftir tíðahvörf eiga hér aftur meira á hættu að finna fyrir einkennum vegna breytinga í slímhúðinni, en mataræði, streita, álag og lyfjanotkun eru einnig áhættuþættir. Alltaf skyldi láta skoða ef útferðin er blóðlituð, þar sem slíkt getur verið merki um illkynja sjúkdóm.

Óþægindi vegna innri kvenlíffæra eru einnig margvísleg, en ef konur finna til verkja við samfarir bendir það til bólgu eða ertingar í leghálsi, legi eða eggjastokkum og ætti að skoða það vel. Hnútar í legi, blöðrur á eggjastokkum og aðskotahlutir eins og lykkja geta valdið einkennum og er rétt að hafa í huga.

Þá má ekki gleyma tíðaverkjum sem geta verið mismiklir og verulega einstaklingsbundnir en konur læra yfirleitt vel að þekkja þá. Svo auðvitað þungun sem þarf alltaf að útiloka – líka hjá konum á barnsburðaraldri. Bráðir og miklir kviðverkir geta verið utanlegsfóstur og uppásnúningur á eggjaleiðara og er rétt að leita strax læknis, hið sama gildir hjá körlum ef skyndilegir og miklir verkir koma upp í eistum. Kjallarinn geymir því ýmislegt forvitnilegt og verra ef hann er í skralli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum