fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
FókusKynning

Besta útsýnið á flugeldasýninguna

Kynning

Kaffivagninn á Menningarnótt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 19. ágúst 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaffivagninn, Grandagarði 10 í Reykjavík, verður í hátíðarskapi á Menningarnótt en þá verður aldrei þessu vant opið til miðnættis. Staðurinn verður opnaður klukkan hálftíu um morguninn. Að sögn Mjallar Daníelsdóttur, eiganda staðarins, er hvergi betra útsýni á flugeldasýninguna sem slær botninn í Menningarnótt en út um gluggana á Kaffivagninum og á pallinum fyrir utan staðinn.

Matreiðslumeistari staðarins verður með nýja og spennandi rétti á Menningarnótt í takt við það ferska hráefni úr sjónum sem honum verður tiltækt þann daginn. Ekki eru borðapantanir en þeir sem mæta tímanlega fá borð og geta notið Menningarnætur á þessum frábæra matsölustað með einstakt útsýni yfir höfnina, sjóinn og borgina.

Einn elsti og þekktasti veitingastaður borgarinnar

Nútíð og fortíð blandast saman með skemmtilegum hætti á Kaffivagninum, einum elsta og þekktasta veitingastað borgarinnar, en síðustu árin hefur verið lögð aukin áhersla á framsækna matargerð úr íslensku sjávarfangi á staðnum. Segja má að Kaffivagninn sé í dag þrískiptur staður, í fyrsta lagi býður hann upp á fjölbreyttan og framúrskarandi morgunverð, í öðru lagi er hann fiskréttastaður og í þriðja lagi kaffihús með kökum.

Kaffivagninn hefur frá árinu 2013 verið í eigu hjónanna Guðmundar Viðarssonar, sem er matreiðslumeistari staðarins, og Mjallar Daníelsdóttur. Á hverjum degi eru í boði 3–4 fiskréttir dagsins:

„Við leggjum mikla áherslu á fiskrétti og erum á þessum skandinavísku nótum. Flestir fiskréttirnir okkar eru bornir fram á pönnum. Einn af þessum pönnuréttum má kalla aðalsmerki Kaffivagnsins en það er þorskhnakki, gratíneraður með rækjum og béarnaise-sósu, Julian-grænmeti og kartöflum. Þetta er afar vinsæll réttur. Síðan erum við með gömlu góðu réttina sem við förum með upp á næsta stig. Þar má nefna plokkfisk, fiskibollur, bleikju og fiskisúpu. Þá erum við með smurbrauð með bleikju en fyrir þá sem alls ekki vilja fisk þá bjóðum við líka upp á smurbrauð með roast beef sem við poppum dálítið upp,“ segir Mjöll. Á Kaffivagninum er fastur matseðill sem gestir staðarins ganga að vísum en réttir dagsins eru hins vegar breytilegir frá degi til dags og ráðast algjörlega af því hvaða fiskur er í boði þann daginn. Ferskleikinn er í hávegum hafður á Kaffivagninum og eingöngu er boðið upp á splunkunýjan og ferskan fisk.

Fjölbreyttur hópur viðskiptavina

Eins og margir aðrir veitingastaðir í Reykjavík hefur Kaffivagninn ekki farið varhluta af fjölgun erlendra ferðamanna, sem vissulega sækja staðinn og setja skemmtilegan svip á hann. Íslendingar eru samt sem áður um 75% gestanna og hefur gestahópurinn orðið fjölbreyttari síðari árin, til dæmis hefur konum fjölgað mikið.

„Hingað koma afar og ömmur með barnabörnin, ungt fólk sækir mikið hingað og svo eru til dæmis kvennahópar sem mæta hingað á föstum tímum, til dæmis fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði og svo framvegis,“ segir Mjöll.
Auk fiskréttanna hefur fjölbreyttur og girnilegur morgunverður Kaffivagnsins mikið aðdráttarafl. Má meðal annars gæða sér á lúxus-hafragraut, hrærðum eggjum, beikoni og eggjum, laxi og ristuðu brauði.

Mjög vinsælt er að fá sér kaffi og kökur á Kaffivagninum en allar kökur eru bakaðar á staðnum.

Hefðbundinn opnunartími Kaffivagnsins er alla daga vikunnar frá kl. 07.30 til 18.00. Heimasíðan er www.kaffivagninn.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum