fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Vitglöp: Orsakir og einkenni

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 8. desember 2016 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað eru vitglöp?
Vitglöp (dementia) eru samnefnari fyrir röð einkenna sem benda til hrörnunar heilans. Einkennin eru lélegt minni og minnkandi hæfni til að takast á við lífið og tilveruna. Sjúkdómurinn þróast hægt. Í byrjun getur verið erfitt að átta sig á hvort um sjúkdóm sé að ræða. Smátt og smátt verður ljóst að aðrir þurfa að sjá um manneskjuna. Sjúkdómurinn er einkum algengur hjá rosknu fólki en til eru dæmi um að hann herji á yngra fólk. Margir mismunandi sjúkdómar leiða til vitglapa, og við flestum er lítið hægt að gera. Einnig sést að þegar roskið fólk verður veikt (t.d. lungnabólga, krabbamein, vökvatap o.fl.) getur komið rugl sem getur minnt á vitglöp en hér gildir að þegar undirliggjandi sjúkdómur hefur verið læknaður þá hverfur ruglið.

Orsakir vitglapa?
Versnandi heilastarfsemi er aðalorsökin. Alzheimer-sjúkdómur sem er algengasta orsökin, veldur því að sjálfar taugafrumurnar (í mörgum hlutum heilans) eyðileggjast hægt og sígandi, sennilega vegna ójafnvægis í boðefnaskiptum í heilanum. Vitglöp vegna heiladrepa eru vegna eyðileggingar taugavefjarins, þegar litlar æðar stíflast af blóðkekkjum sem oft og tíðum orsakast af óreglulegum hjartslætti. Oft veit maður ekki hvers vegna þetta gerist. Þá eru til vitglöp sem byggja á uppsöfnun efna og kallast ýmsum nöfnum, þekktust fyrir utan Alzheimer er Lewy Body-heilabilun. Þá verður að minnast á það að sjúklingar með Parkinson geta þróað með sér vitglöp eða heilabilun. Óhófleg áfengisneysla, áverkar á heilavef, heilaáföll og sýkingar, sjálfsofnæmissjúkdómar líkt og MS. Þá er vert að nefna efnaskiptavanda, aukaverkanir lyfja, eitranir og svo auðvitað neyslu eiturlyfja.

Hver eru einkennin?
Á byrjunarstigi vitglapa veit sjúklingurinn af því að minnið er að byrja að bresta. Þegar á líður minnkar þessi meðvitund. Tímabilið fram að þessu getur valdið óþægindum. Tilfinningar eins og hræðsla, ringulreið og vonleysi geta verið áberandi, en einnig geta breytt og óeðlileg hegðunarmynstur átt sér stað, þá er talsvert um verk og málstol einnig. Þetta getur sveiflast með tímanum og breyst á marga vegu, sjúklingurinn sjálfur verður mögulega ekki eins var við það eins og aðstandendur sem oftsinnis eiga erfiðara en einstaklingurinn sjálfur með að sjá sinn nánasta breytast með þessum hætti og í raun týnast.

Sjálfshjálp
Ef einkenna verður vart skal haft samband við lækni til að ganga úr skugga um orsakirnar og byrja mögulega meðferð.

Drekkið minna áfengi, fólk með vitglöp þolir það verr.

Sem aðstandandi skaltu forðast aðstæður þar sem margt er um manninn, mikill hávaði sem og staði sem eru sjúklingnum ókunnugir. Slíkar aðstæður gera sjúklinginn óöruggan.

Mikilvægt er að gera þó minnisæfingar framan af, viðhalda og tryggja samskipti milli einstaklinga, hafa eitthvað við að vera, sem hæfir stigi hvers og eins. Halda rútínu, sérstaklega með svefn og athafnir daglegs lífs.

Sækja sér aðstoð snemma og átta sig með aðstandendum á því hvernig sjúkdómurinn muni eða geti þróast og vinna gagngert í því að viðhalda almennri heilsu sem mest með reglubundinni hreyfingu og hollu mataræði.

Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?
Margir aðrir sjúkdómar hafa svipuð einkenni, sem til eru virkar meðferðir við. Því er nauðsynlegt að ganga úr skugga um hvort einhver annar sjúkdómur sé að baki ástandinu. Með blóðsýni má greina hvort um sé að ræða efnaskiptasjúkdóma, vítamínskort (þá aðallega B-12), sýkingu eða vökvatap. Læknirinn sker úr hvort um sé að ræða þunglyndi, sem hefur svipuð einkenni í för með sér en hægt er að meðhöndla. Þar að auki er oft tekin tölvusneiðmynd af heilanum, og jafnvel er sjúklingurinn settur í segulómun, en þessar rannsóknir sýna ef drep er í heila, æxli eða blæðingar, og ef vökvasöfnun á sér stað. Þá er notast við PET-skönnun einnig.

Batahorfur
Algengasta orsökin er Alzheimer-sjúkdómur, en við honum eru til lyf sem hægja á sjúkdómnum en lækna hann ekki. Þó eru blikur á lofti með meðferð sem er enn á tilraunastigi og verður spennandi að fylgjast með en þar er notast við ómtækni og hljóðbylgjur sem eiga samkvæmt dýratilraunum að virka mjög vel. Stefnt er að tilraunum með einstaklinga á árinu 2017.

Ef vitglöpin eru vegna efnaskiptavanda er í mörgum tilfellum hægt að snúa ferlinu við eða stöðva það. Vítamín, steinefni, bætiefni og hormónalyf geta haft áhrif en þá er mikilvægt að átta sig á undirliggjandi orsök.

Vitglöp fara iðulega versnandi og með tímanum getur þurft að vista sjúkling á dvalar- eða hjúkrunarheimili þar sem hann verður ófær um að sinna sér og sínum helstu þörfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum