fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
FókusKynning

Listaverk og dýrgripur: Jólaskeiðin 2016 er komin

Kynning

Verslun Guðlaugs A. Magnússonar, Skólavörðustíg 10

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 23. nóvember 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslun Guðlaugs A. Magnússonar, Skólavörðustíg 10, var stofnuð árið 1924 og er því ein elsta skartgripaverslun landsins. Guðlaugur var gullsmiður að mennt en afkomendur hans lærðu listina af honum. Hanna Sigríður Magnúsdóttir rekur fyrirtækið í dag og hannar skartgripi sem seldir eru í versluninni. Þar ber hæst jólaskeiðina svonefndu, sem hefur verið hönnuð og seld fyrir jólin í 70 ár.

Guðlaugur hóf að hanna jólaskeiðina árið 1946. Árið 1963 tók sonur hans, Magnús Guðlaugsson, við fyrirtækinu en hann var þá aðeins tvítugur að aldri. Guðlaugur var þá látinn. Magnús nam viðskipta-og verslunarstjórnun í London en lærði jólaskeiðahönnun af forverum sínum. Það sama gildir um núverandi eiganda, Hönnu Sigríði, en hún tók við fyrirtækinu árið 2004. Hanna er viðskiptafræðingur frá New York og hún lærði handbragðið af föður sínum, Magnúsi:

„Mér fannst óskaplega gaman að fylgjast með pabba þegar hann var að hanna skeiðarnar í gamla daga. Hann var nátthrafn eins og ég og fékk oft sínar bestu hugmyndir á nóttunni. Þá hittumst við stundum við stofugluggann og horfðum saman á stjörnurnar,“ segir Hanna. Hún hefur hannað jólaskeiðina síðustu fjögur ár og núna er nýjasta útgáfa hennar komin í verslunina:

„Við höfum haft þá venju að halda sama formi á skeiðarblaðinu en skaftið getur verið breytilegt milli ára. Stundum helst það óbreytt í sex ár, stundum breytist það árlega – allur gangur á því.“

Efnið í skeiðinni er 92,5% sterlingssilfur og 7,5% kopar. Koparinn er settur í til að herða skeiðina. Hér á mynd gefur að líta jólaskeiðina 2016 sem óneitanlega er gullfallegur gripur. En hvaða hugmyndir liggja að baki þessari fegurð?

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Mig langaði til að beina athyglinni að hinu andlega, taka ekki bara kristnu gildin heldur sameiginleg gildi trúarbragða og andlegs lífs. Tengja saman trú, sama hvaða nafni hún nefnist. Á fyrstu skeiðinni sem ég hannaði frá grunni árið 2013 var mynd af konu að biðja, Maríu mey. Þá skeið hannaði ég til að heiðra minningu föður míns sem lést það ár. Á skeiðinni 2014 var Seraphim-engill sem gætir hásætis drottins. Á skeiðinni 2015 var dúfa sem tákn heilags anda.“

Skeiðin sem Hanna skapaði í ár er fyrsta skeiðin í trílógíunni Trú, von og kærleikur:

„Mótífið er gyðja trúarinnar sem horfir niður tröppurnar yfir farinn veg. Hún lítur til himins inn í hið ókunna. Bak við hana er Lífsins blóm, þetta stærðfræðilega fullkomna tákn. Í miðjunni er fullkomið blóm og út frá hverju einasta blaði á því spretta önnur eins fullkomin blóm. Fullkomleiki. Þó að við séum einstök og fullkomin eins og við erum þá erum við líka samofin lífi annarra. Blái liturinn er tákn fyrir litinn á himninum rétt fyrir dögun. Við þurfum að hafa tilgang í lífinu og trúa á eitthvað æðra okkur. Fyrir mér er trúin þessi vonarneisti sem við höldum í. Að sjá ljós og hafa von í hjarta þrátt fyrir að við okkur blasi erfiðleikar. Það var sú hugmyndafræði sem var í gangi hjá mér. Næst ætla ég að takast á við vonina 2017 og síðan kærleikann 2018.“

Jólaskeiðin kostar 17.900 krónur sem mörgum þykir ekki mikið fyrir þennan dýrgrip.

Aðspurð um aðrar vörur í verslunni segir Hanna að það sé gott úrval af silfurvörum og silfurskartgripum. Margt af því hannar hún sjálf. Hún gerir mikið af skrautmunum bæði úr messing og stáli, meðal annars snjókorn, rúnir, engla og fleira.

Jólaskeiðarnar sýndar á aðventunni

Sem fyrr segir er Verslun Guðlaugs A Magnússonar staðsett að Skólavörðustíg 10. Opið er mánudaga til föstudaga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá kl. 11 til 16.

Á aðventunni verður líka opið á sunnudögum og þá verður sýning á gömlu jólaskeiðunum í versluninni. Frá og með sunnudeginum 27. nóvember og síðan alla sunnudaga fram að jólum verður opið á sunnudögum frá kl. 13 til 17.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum