fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

„Beljum er nauðgað“

Segir nauðgunarmenningu ríkja innan mjólkuriðnaðarins – „Fólk sem neytir dýraafurða er taka þátt í ofbeldisiðnaði“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 28. janúar 2018 23:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vigdís Howser Harðardóttir er 24 ára vegan, femínisti, aktívisti, rappari og ljóðskáld. Vigdís varð grænmetisæta fyrir um sex árum. Fyrir rúmu ári ákvað hún að hætta að neyta allra dýraafurða og gerðist vegan. Vigdís segir að allir sem neyta dýraafurða séu þátttakendur í ofbeldisiðnaði. Hún segir mjólkuriðnaðinn sérstaklega ofbeldisfullan. Innan hans ríki hrottaleg nauðgunarmenning sem fáir vilji ræða um, að sögn Vigdísar. „Beljum er nauðgað fyrir mjólk […] Við þurfum að endurskoða hvað við erum að gera þegar við fáum okkur mjólkurglas og hvað við erum að segja með því.“

Femínisti og vegan

„Ég var og er rosalega mikill femínisti og varð svo vegan. Fyrir mér fellur þetta saman í eitt,“ segir Vigdís. Hún tekur reglulega þátt í aktívisma og er virk í alls konar Facebook-hópum sem berjast fyrir málefnum dýra og kvenna.

„Ég og vinkona mín höfum mikið rætt okkar á milli um nauðgunarmenningu í mjólkuriðnaðinum. Okkur hefur langað að byrja umræðu um það inn á Facebook-hóp sem berst gegn nauðgunarmenningu. Þegar rætt er um nauðgunarmenningu gleymist oft að ræða um karlmenn, samkynhneigða og transfólk til dæmis. Aðrar tegundir gleymast. Ekki að það sé ekki rosalega mikilvægt að ræða um konur, þar sem konur verða fyrir hvað mestu ofbeldi. En umræðan um nauðgunarmenningu hefur verið máluð af hvíta femínismanum. Allir nema hvíta konan gleymast,“ segir Vigdís.

Opnaði umræðu á Facebook

Vigdís ákvað að deila færslu inn á Facebook-hóp þar sem barist er gegn nauðgunarmenningu.

„Ég deildi mjög áhugaverðri grein eftir Benjamín Sigurgeirsson sem birtist á vef Kvennablaðsins. Greinin er um misbeitingu valds og ofbeldi gagnvart ómennskum dýrum í landbúnaði hér á landi. Með færslunni skrifaði ég að beljum væri nauðgað fyrir mjólk og sagði að þetta væri umræða sem væri mikilvægt að taka og hefði hingað til verið hundsuð og þögguð. Lokað var fyrir umræðu við færsluna. Það var sagt að umræðan væri ekki þolendavæn og ekki viðeigandi þarna inni. Þetta er ekki aktívistahópur ef aðeins nokkrir sérvaldir einstaklingar, sem eru „admin“ í hópnum, mega segja til um hvað er viðeigandi aktívismi þarna inni og hvað ekki,“ segir Vigdís og bætir við að hún hafi ekki verið sú fyrsta til að ræða um nauðgunarmenningu innan mjólkuriðnaðarins í hópnum.

Vigdís hefur lent í kynferðisofbeldi og segist þess vegna tengja mikið við ofbeldið sem dýrin ganga í gegnum.
Þolandi kynferðisofbeldis Vigdís hefur lent í kynferðisofbeldi og segist þess vegna tengja mikið við ofbeldið sem dýrin ganga í gegnum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Færslan sem ég setti inn var í raun fjórði þráðurinn um þetta málefni. Hinum þremur hafði verið eytt. Áður en lokað var fyrir ummæli undir færsluna mína sagði einn meðlimur hópsins að enginn nærðist á nauðgun kvenna. Í raun var meðlimurinn að viðurkenna að beljum sé nauðgað, en væri einhvern veginn í lagi því fólk nærðist í kjölfarið. Mér finnst þessi hugsun mikil afturför.“

Öllum dýrum nauðgað

Hvernig er nauðgunarmenning innan mjólkuriðnaðarins?

„Beljum er nauðgað. Beljur geta ekki gefið samþykki. Við skilgreinum nauðgun sem að neyða einhvern til kynferðislegra athafna gegn vilja einstaklingsins eða án þess að fá samþykki hans. Samkvæmt þeirri skilgreiningu er beljum nauðgað,“ segir Vigdís og heldur áfram:

„Þetta er gert við öll dýr í dýraiðnaðinum. Ég er ekki að segja að þetta sé alveg eins og þegar konur eru beittar ofbeldi, alls ekki. En það þýðir samt ekki að það megi ekki tala um það. Nú þegar við erum komin á þann tíma að samfélagið er í auknum mæli að ræða um ofbeldi gagnvart dýrum og bregðast við því, þá má skoða hvernig það er rekið stálspjót upp í klofið á belju til að gera hana ólétta, „barnið“ svo tekið frá henni og mjólkin. Af hverju erum við, mannfólkið, að setja okkur á hærri stall bara af því að við erum önnur tegund. Þetta er tegundarhyggja.“

Hlutir sem þú vissir ekki að væru vegan

Hér er ýmislegt sem þú vissir ekki að væri vegan og væri ekki vegan. DV fékk aðstoð frá Viggu Þórðar og Sæunni Ingibjörgu Marinósdóttur, sem eru vegan, við gerð listanna. Þeir eru langt frá því að vera tæmandi.

Hlutir sem eru vegan:

Oreo-kex

Svart Doritos

Dökkt Nóa hátíðar pralín

Dökkar súkkulaðirúsínur

Flest brauð

Flest pasta

Margir Toro-pakkar (Listi yfir vegan Toro-pakkana á Vegan Ísland Facebook-hópnum)

Betty Crocker mix, ef þú sleppir eggjum og olíu og setur eina dós af Kristal kolsýrðu vatni í staðinn.

Appelsín

Malt

Franskar

Skittles

Hlutir sem eru ekki vegan:

Kerti (Það eru til sérstök vegankerti)

Eldspýtur

Ódýr vín og sumir bjórar

Hunang

Dekk (Eru til vegan)

Almennt tannkrem er oft með mjólk

Oft rauður matarlitur

Flest amino (Til veganamino frá Now)

Flest hlaup (Til vegan frá BUBS)

Cheerios og Kellogg’s kornflögur

Pestó

Majónes

Af hverju eru þessir hlutir ekki vegan?

Vín og bjór: Sundmagi úr fiskum er notaður í framleiðsluferlinu. Í hefðbundnum vínum er ekki notað slíkt og eru þau vegan.

Amino: Fuglafjaðrir til að gefa kreatín

Kerti: Býflugnavax

Rauður matarlitur: Kramdar rauðar pöddur

Hlaup: Hófar, bein og skinn

Cheerios og Kellogg’s kornflögur: UV-geislað kólesteról unnið úr ullarfitu.

Pestó: Inniheldur ost

Sjálf þolandi kynferðisofbeldis

Vigdís þekkir kynferðisofbeldi af eigin raun. Hún segir að vera þolandi hjálpi henni að sjá ofbeldið út frá sjónarmiði og upplifun dýranna. „Ég tengi ofbeldið sem dýrin upplifa mikið við að hafa sjálf lent í ofbeldi. Ef ég væri önnur tegund myndi enginn hlusta á mig eða tala um ofbeldið. Mér finnst hryllingur að hugsa til þess. Ég lít á dýr sem tilfinningaverur. Margir gera það ekki, sem mér finnst óskiljanlegt.“

Konur og dýr sett í sama flokk

„Ég lít á dýr sem tilfinningaverur. Margir gera það ekki, sem mér finnst óskiljanlegt,“ segir Vigdís.
Tilfinningaverur „Ég lít á dýr sem tilfinningaverur. Margir gera það ekki, sem mér finnst óskiljanlegt,“ segir Vigdís.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Tungumál og orðræða eru mikilvægir þættir í umræðunni að sögn Vigdísar. „Það er mjög oft verið að bera konur saman við dýr. Eins og ef kona lendir í hrottalegu ofbeldi er oft sagt: „Það var komið fram við hana eins og dýr.“ Ef fólk myndi hlusta á tungumálið sem viðkemur konum, beljum, svínum og öðrum dýrum, myndi það sjá hvernig þetta er sett í sama flokk,“ segir Vigdís sem er að læra kynjafræði við Háskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á náminu.

„Ég hef verið að skoða tengingu milli mansals og beljuiðnaðarins. Konur eru hlekkjaðar í búr, þeim er nauðgað og síðan eru afkvæmi þeirra tekin af þeim og seld áfram. Það er komið fram við konur í mansali eins og dauðar verur sem hafa engan annan tilgang en að framleiða. Tungumálið og tilfinningarnar eru teknar af þeim. Þetta er nákvæmlega það sem við gerum við beljur.“

Kúabóndi ósammála

DV hafði samband við Aðalstein Hallgrímsson, kúabónda, og spurði hvað honum fyndist um umræðuna um að beljum sé nauðgað.

„Ég er algjörlega ósammála því. Það er ekki hægt að nauðga skepnu með þessari aðferð. Þetta er ákveðin aðferð sem er kölluð „að sæða kú,“ þegar sæðið er sett í kúna. En þetta er ákveðið sjónarmið og ég er ekki sammála þessari túlkun,“ sagði Aðalsteinn.

Myndir þú segja að mjólkuriðnaðurinn væri sökudólgurinn?

„Ekki bara iðnaðurinn heldur einnig neytendur hans. Áður vissum við ekki betur og héldum að mjólk væri holl og góð fyrir okkur. Nú vitum við betur. Iðnaðinum er stjórnað af milljarðamæringum sem hugsa aðeins um hagnað. Við þurfum ekki á mjólk að halda. Sérstaklega hér á Íslandi þar sem er mikið og fjölbreytt úrval af öðruvísi mjólk og mjólkurvöru. Ef fólk ákveður að það vilji ekki taka þátt í þessum iðnaði lengur getur það mjög auðveldlega breytt um lífsstíl,“ segir Vigdís.

Ofbeldisiðnaður

„Fólk sem neytir dýraafurða yfirhöfuð er að taka þátt í ofbeldisiðnaði. En innan mjólkuriðnaðarins sérstaklega er það þessi nauðgunarmenning sem viðgengst. Ég er ekki að segja að fólk sé slæmt eða vont fyrir að taka þátt í þessum iðnaði. En mér finnst alveg mega ræða um þetta. Ég vil taka það fram að þessi umræða er ekki til að ráðast á eða ásaka neinn. Ég er ekki að ráðast á femínista fyrir að einblína á konur en ekki dýr. Það er alls ekki tilgangur umræðunnar. Tilgangurinn er að byrja umræðu fyrir dýrin,“ segir Vigdís og bætir við:

„Ég er samt að benda á að aktívistar sem eru vanir að berjast fyrir málefnum sem fólk lítur á sem tabú, eins og stafrænt kynferðisofbeldi og kynferðisofbeldi gegn fötluðum, eru ekki tilbúnir að taka umræðu fyrir dýrin. Mér finnst skrýtið að sama fólk og berst í #metoo-byltingunni loki algjörlega á þessa umræðu og vilji ekki taka þátt í henni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Í gær

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki