fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Sælandsgarðar: Liðsmenn þínir í vorverkunum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 14. apríl 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Vorið er á næsta leiti og því ekki seinna vænna að huga að garðinum, hellulögn, hreinsun og fleiru,“ segir Eiríkur Sæland, garðyrkjufræðingur og stofnandi fyrirtækisins Sælandsgarðar. Eiríkur er menntaður garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins og sótti sér frekari menntun í faginu til Noregs og Danmerkur. Hann hefur frá árinu 2008 rekið eigið fyrirtæki, Garðaþjónustuna E. Sæland, sem hefur skipt um nafn og heitir nú Sælandsgarðar ehf. Tilefni nafnbreytingarinnar er það að sonur Eiríks, Kolbeinn Sæland vélstjóri, er kominn inn í rekstur fyrirtækisins, en hann lýkur námi sem skrúðgarðyrkjufræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands í vor. Auk þeirra feðga starfa við fyrirtækið skrúðgarðyrkjumeistari og fleiri mjög reyndir starfsmenn.

Hellulögn og hleðslur

Á þessum árstíma viðrar oft vel til að vinna í hellulögn og hleðslu. Til dæmis að rífa upp og endurnýja gamla hellulögn í heimkeyrslum, á bílastæðum og göngustígum, og leggja nýja. Oft þarf líka að endurnýja gamlar hleðslur eða gera nýjar, hvort heldur er með forsteyptum einingum eða náttúrulegu grjóti. Hellur og náttúrugrjót geta verið skemmtileg lausn í garðinum til að minnka garðslátt og gera ásýnd garðsins léttari, nútímalegri og flottari. Þarna þarf síðan líka að koma við sögu ráðgjöf og undirbúningur á borð við jarðvegsskipti og uppsetningu snjóbræðslukerfa eftir því sem við á og óskað er eftir.

Tímabært er einnig orðið að hreinsa beðin, kantskera og semja um garðslátt en um mánuður gæti nú verið í fyrsta slátt í garðinum. Sælandsgarðar ehf. tekur að sér öll þessi verk og hefur síðustu ár séð um garðslátt, beðahreinsun og alla umhirðu garða fyrir húsfélög, fjölbýlishús, stór og lítil fyrirtæki og stofnanir.

 Sælandsgarðar ehf.

Starfsmenn Sælandsgarða mæta á svæðið, skoða umfang verksins, gera áætlanir um lausn með húseigendum og leysa í kjölfarið verkið af fagmennsku, fljótt og örugglega, á hagkvæman hátt.

Sælandsgarðar ehf. er vaxandi fyrirtæki sem tekur að sér verkefni allt árið um kring. Eiríkur og hans menn eru með öll nauðsynleg tæki og búnað í garðaþjónustu og hellulögn – eru fagmenn sem leggja áherslu á persónulega þjónustu og vandaða vinnu.

Hægt er að hafa samband við Eirík hjá Sælandsgörðum í síma 680-9903, með tölvupósti á netfangið eirikur_omar@hotmail.com og á Facebook-síðunni Garðaþjónusta E. Sæland ehf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum