fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Óttar Guðmundsson

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

EyjanFastir pennar
21.02.2026

Vandamál bráðamóttökunnar í Fossvogi eru reglulega til umræðu. Starfsfólk mætir í viðtöl og lýsir hamfaraástandi á spítalanum. Sjúklingar kúldrast í bílageymslum og krókum og kimum. Biðtíminn er endalaus. Nýlega kom upp berklasmit meðal starfsmanna. Alvarlegir og örþreyttir læknar segjast vera að niðurlotum komnir. Lýst er viðvarandi neyðarástandi. Þessar dramatísku lýsingar minna á fréttaflutning frá Gasaströndinni Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins

EyjanFastir pennar
14.02.2026

Ágætur vinur minn í læknastétt þurfti nýlega að fara í aðgerð. Hann var eðlilega kvíðinn enda hafði hann aldrei kynnst alvarlegum sjúkdómum af eigin raun eða gengist undir svæfingu. Eftir samtal við skurðlækninn vissi hann allt um meinið og leyndardóma þess. Hann las sér til um það sem farið gæti úrskeiðis í aðgerðinni og var Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Epstein og kóngafólkið

Óttar Guðmundsson skrifar: Epstein og kóngafólkið

EyjanFastir pennar
07.02.2026

Í leikbókmenntum samtímans má finna mörg leikrit sem fjalla um framandi mann sem kemur í óvænta heimsókn til venjulegs fólks. Hann setur allt á annan endann og afhjúpar ótal fjölskylduleyndarmál. Glöggur áhorfandi áttar sig fljótlega á því að gesturinn er skrattinn sjálfur sem leiðir viðkomandi fjölskyldu í glötun. Fjölmiðlar í raunheimi hafa leikið á reiðiskjálfi Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

EyjanFastir pennar
31.01.2026

Sæmundur „fróði“ Sigfússon frá Odda á Rangárvöllum sigldi til náms í Svarta skóla eða Sorbonne í París á ofanverðri elleftu öld. Hann lagði fram prófskírteini frá Íslandi sem skólameistara fannst skrítið. Íslenska menntakerfið hafði nefnilega tekið upp einkennilegt bókstafa- og litakerfi í stað einkunna á töluformi að kröfu menntamálaráðuneytisins. Nútímauppeldisfræðingar höfðu komist að raun um Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Áfallasaga

Óttar Guðmundsson skrifar: Áfallasaga

EyjanFastir pennar
24.01.2026

Ég var á Læknadögum í vikunni og hlýddi á málþing um áhrif áfalla á börn. Fyrirlesarinn sýndi ótal myndir af heilanum og lýsti flóknum taugaboðum sem færu á milli heilastöðva. Mikil streita og álag leiddu til þess að börn kæmu sér upp flóknum varnarháttum til að ráða við ástandið. Þetta gæti leitt til tilfinningalegrar bælingar Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Bílaumferðin

Óttar Guðmundsson skrifar: Bílaumferðin

EyjanFastir pennar
17.01.2026

Ég hitti Njál Þorgeirsson bónda á Bergþórshvoli á dögunum við umferðarljós á Miklubraut. Hann beið eftir gönguljósum og horfði á umferðina þjóta hjá. „Þetta eru ótrúlega margir bílar,“ sagði hann. „Eiga allir í landinu bíl?“ „Já,“ svaraði ég. „Margir eiga meira að segja tvo eða þrjá bíla. Ísland er nefnilega bílaland. Hér eru litlar almannasamgöngur Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur

EyjanFastir pennar
10.01.2026

Með hækkandi aldri er ég stundum spurður hvort og hvenær ég ætli að skrifa ævisögu mína. Sá bransi er reyndar á fallanda fæti en æviminningar eru endanleg staðfesting á eigið mikilvægi. Menn skrásetja afrek sín og hlaða sér bautastein á prenti. Ég hef lesið flestar ævisögur lækna sem út hafa komið. Eldri læknar lýsa ótrúlegum Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Fréttastofujól

Óttar Guðmundsson skrifar: Fréttastofujól

EyjanFastir pennar
03.01.2026

Jól og áramót eru tími hins fyrirséða þar sem hefðir eru ríkjandi. Sama gildir um fréttastofur sjónvarps í aðdraganda jóla. Þar eru sömu fréttirnar fluttar árlega. Í desember er leitast við sýna öfluga jólaskreytingameistara sem lýsa upp húsið sitt og nánasta umhverfi með mörg þúsund ljósaperum. Litríkir, glitrandi jólasveinar fikra sig upp húsvegginn og glampandi Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Við áramót

Óttar Guðmundsson skrifar: Við áramót

EyjanFastir pennar
27.12.2025

Allir eru sammála um að töfrar og vinsældir vinnunnar hafa minnkað. Kulnun og örmögnun vegna vinnu eru tískugreiningar samtímans. Mikill fjöldi fólks er í langtímaveikindaleyfi vegna atvinnutengdrar þreytu og þunglyndis. Vinnutíminn hefur verið styttur í áföngum til að minnka þetta vinnuböl en allt kemur fyrir ekki. Margir spekingar hafa skrifað um síðustu hugleiðingar manna á Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Inntökureglur í Menntó

Óttar Guðmundsson skrifar: Inntökureglur í Menntó

EyjanFastir pennar
20.12.2025

Ég áttaði mig snemma á því að ég hafði enga hæfileika á sviði íþrótta og tónlistar. Um árabil stundaði ég æfingar hjá knattspyrnufélaginu Fram við gamla Sjómannaskólann. Ég náði aldrei neinum árangri heldur tilheyrði svokölluðu „rusli“ sem enginn vildi hafa með sér í liði. Margar sárar bernskuminningar tengjast Framvellinum þar sem ég var venjulega einn Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af