fbpx
Föstudagur 23.janúar 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur

Eyjan
Laugardaginn 10. janúar 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með hækkandi aldri er ég stundum spurður hvort og hvenær ég ætli að skrifa ævisögu mína. Sá bransi er reyndar á fallanda fæti en æviminningar eru endanleg staðfesting á eigið mikilvægi. Menn skrásetja afrek sín og hlaða sér bautastein á prenti.

Ég hef lesið flestar ævisögur lækna sem út hafa komið. Eldri læknar lýsa ótrúlegum lækningum við frumstæðustu skilyrði. Þeir sundriðu ófærar ár í brjáluðu veðri. Gerðu aðgerðir og tóku á móti börnum á stofuhurð í þröngum og dimmum húsakynnum. Einn græddi eista í getulausan auðkýfing. Margir grobba mikið og tíunda afrek á heimsmælikvarða. Einn segist hafa tilheyrt 50 bestu læknum á austurströnd Bandaríkjanna. Annar læknir skrifaði um kvennamál sín af fullkomnum heiðarleika og dró ekkert undan. Hann var umsvifalaust rekinn úr læknasamfélaginu og sviptur öllum réttindum. Maðurinn flúði land og dó skömmu síðar. Sannleikurinn gerði hann því ekki frjálsan heldur kom honum í óendanleg vandræði.

Nokkrir jafnaldrar mínir af 68-kynslóðinni hafa skráð æviminningar sínar. Menn leggja venjulega áherslu á sögulegt mikilvægi sjálfs sín. Þroskaárin 1967-1980 voru átakatímar. Stúdentar í París og Berlín slógust við lögreglu og byggðu sér götuvígi. Í Reykjavík voru átök um hersetuna, kvenréttindi og Vietnam stríðið. Menn lýsa þátttöku sinni í baráttunni og helstu áhrifavöldum samtímans. Þar ber hæst róttæka stúdentaleiðtoga og gamla pólitíska refi eins og Trotsky og Rósu Luxemburg en auk þess dægurlagaskáldin Bob Dylan, Þorstein Eggertsson og fleiri. Margir vitna jöfnum höndum í Maó formann og ýmsa dægurlagahöfunda sem orðuðu vonir og þrár heillar kynslóðar. Speki eins og „Can‘t buy me love“ eða „Give peace a change,“ verða eins og ódauðlegir frasar úr Brennunjálssögu. 68-kynslóðin segist hafa umbylt heiminum með rauða kverið í annarri hendi og „Sgt Pepper‘s Lonely Hearts Club Band“ í hinni. Allir voru að keppast við að vera róttækustu hipparnir en urðu með aldrinum venjulegir smáborgarar með annan fótinn á Tene.

Eftir að hafa lesið þykkan stafla af ævisögum ákvað ég að láta þar við sitja. Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að draga fram allan sannleikann hvað þá heldur að blaðra um spekina í textum John Lennon. Læt mér bara nægja beiskjuna í Gretti Ásmundarsyni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Af silkihúfum og öðrum húfum

Svarthöfði skrifar: Af silkihúfum og öðrum húfum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Trump byltingin og planið

Þorsteinn Pálsson skrifar: Trump byltingin og planið
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Thomas Möller skrifar: Hugleiðing um áramót

Thomas Möller skrifar: Hugleiðing um áramót
EyjanFastir pennar
20.12.2025

Óttar Guðmundsson skrifar: Inntökureglur í Menntó

Óttar Guðmundsson skrifar: Inntökureglur í Menntó
EyjanFastir pennar
19.12.2025

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur
EyjanFastir pennar
14.12.2025

Björn Jón skrifar: EES og leiðin til aukinnar hagsældar

Björn Jón skrifar: EES og leiðin til aukinnar hagsældar
EyjanFastir pennar
13.12.2025

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng