fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Epstein og kóngafólkið

Eyjan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í leikbókmenntum samtímans má finna mörg leikrit sem fjalla um framandi mann sem kemur í óvænta heimsókn til venjulegs fólks. Hann setur allt á annan endann og afhjúpar ótal fjölskylduleyndarmál. Glöggur áhorfandi áttar sig fljótlega á því að gesturinn er skrattinn sjálfur sem leiðir viðkomandi fjölskyldu í glötun.

Fjölmiðlar í raunheimi hafa leikið á reiðiskjálfi síðustu árin vegna slíkrar gestakomu. Jeffrey nokkur Epstein kom inn í samkvæmislíf ríka og fína fólksins í lok liðinnar aldar. Maðurinn var forríkur, afskaplega töfrandi og fullkomlega siðblindur. Fína fólkið á Vesturlöndum heillaðist af þessum manni og féll á hné og tilbað hann. Hann freistaði með harðbönnuðum og skemmtilegum viðburðum sem sem kitluðu blygðunarkenndina. Eftir dramatískt sjálfsvíg hvarf hann af vettvangi en vinir hans og aðdáendur eru vinsælt umtalsefni fjölmiðla.

Konungsfjölskyldur vesturlanda voru engin undantekning. Samkvæmt gömlum kennisetningum sækja kóngar vald sitt til Guðs. Orð þeirra eru lög. Aðalvandamál konungsfjölskyldna Evrópu í samtímanum er að þeim leiðist. Lífið er tilbreytingarlaust í öllum sínum allsnægtum og innihaldslausa hégóma og blaðri. Harry prins flúði til Bandaríkjanna vegna hreinna leiðinda. Hjónaband Hinriks prins og Margrétar Danadrottningar var svo leiðinlegt að hann neitaði að láta grafa sig nálægt henni. Skemmtilegustu uppákomur við sænsku hirðina eru mismæli og orðaleppar Karls Gústafs konungs.

Engan þarf að undra að konungsfjölskyldur féllu marflatar fyrir persónutöfrum Epsteins. Andrés Bretaprins tók þátt í forboðnum kynlífsathöfnum til að setja krydd í einhæfa tilveru sína. Norska krónprinsessan Mette Marit umgekkst Epstein og daðraði við hann á opinskáan hátt. Konan var í óhamingjusömu hjónabandi. Sonur hennar vandræðaunglingur og ofbeldismaður. Epstein var kærkomin tilbreyting í fábreytileika og formfestu hirðlífsins með sínu ögrandi líferni. Norðmenn eru steini lostnir. Krónprinsessan var þá bara mannleg eftir allt saman og lét fallerast af andskotanum. Þetta er áfellisdómur yfir þá sjálfa. Kóngafólkinu leiðist svo mikið að það er tilbúið að selja sál sína skrattanum fyrir smáspennu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Bæling er ekki boðskapur kærleikans

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Bæling er ekki boðskapur kærleikans
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Svona verða umskiptin á Íslandi fram á miðja öld

Sigmundur Ernir skrifar: Svona verða umskiptin á Íslandi fram á miðja öld
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Landráðamenn

Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
EyjanFastir pennar
11.02.2026

Thomas Möller skrifar: JÁ þýðir já við nýjum tækifærum

Thomas Möller skrifar: JÁ þýðir já við nýjum tækifærum
EyjanFastir pennar
08.02.2026

Björn Jón skrifar: Örlög fjarskyldra frænda

Björn Jón skrifar: Örlög fjarskyldra frænda