Charlie Hedbo ætlar að endurprenta Múhameðsteikningarnar
PressanFranska háðsádeiluritið Charlie Hedbo ætlar að endurprenta umdeildar teikningar af spámanninum Múhameð. Þetta er gert í tengslum við réttarhöld yfir 14 manns sem eru ákærðir fyrir aðild að mannskæðri árás á höfuðstöðvar tímaritsins í janúar 2015. Þau hefjast í dag, miðvikudag. „Við munum aldrei láta undan. Við munum aldrei gefast upp,“ skrifar Laurent Sourisseau, ritstjóri tímaritsins, í tengslum við endurútgáfuna. 12 Lesa meira
Dularfull dráp og limlestingar á hrossum – Líkist helgisiðum
PressanÁ undanförnum mánuðum hefur verið tilkynnt um 30 mál þar sem hrossum hefur verið misþyrmt og þau drepin í Frakklandi. Þetta hefur gerst víða um landið og er lögreglan ráðþrota og hestamenn eru óttaslegnir. Sky skýrir frá þessu. Fram kemur að eyru hafi verið skorin af, augun tekin úr, kynfærin skorin, maginn skorinn upp og allt Lesa meira
17 ára stúlka lamin og allt hár rakað af henni fyrir að „elska kristinn pilt“
Pressan17 ára stúlka var lamin af foreldrum sínum og sítt hár hennar rakað af fyrir að „elska kristinn pilt“. Þetta átti sér stað í Besancon í Frakklandi. Foreldrar hennar eru múslimar og tóku því vægast sagt illa að stúlkan hefði fellt hug til pilts sem er kristinnar trúar. Mirror segir að stúlkan sé af bosnískum ættum. Það var Lesa meira
Jóakim Danaprins á batavegi – Fékk góðan gest í vikunni
PressanJóakim Danaprins, yngri sonur Margrétar Þórhildar Danadrottningar, er á batavegi eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna blóðtappa í heila. Hann fékk góðan gest í vikunni þegar bróðir hans, Friðrik krónprins, heimsótti hann á sveitasetur konungsfjölskyldunnar í Frakklandi. Danska hirðin skýrði frá þessu í gær og birti meðfylgjandi mynd af bræðrunum við morgunverðarborðið við sveitasetrið. Lesa meira
Nýir húseigendur ætluðu að koma lúxuseigninni í gott stand – Gerðu óhugnanlega uppgötvun í kjallaranum
PressanÍ rúmlega 30 ár stóð stórt og reisulegt hús í hjarta Parísar autt og yfirgefið. En nýlega keypti auðmaðurinn Jean-Bernard Lafonta húsið og greiddi 35 milljónir evra fyrir. Húsið er við 12 rue Qudinot sem er skammt frá embættisbústað franska forsætisráðherrans. Á ljósmyndum má sjá að búið var að múra upp í gluggaop og að garðurinn var í algjörri órækt. En Lafonta hófst strax Lesa meira
Metfjöldi flóttamanna reynir að komast yfir Ermasund í smábátum
PressanFjöldi þeirra flóttamanna og annarra sem reyna að komast ólöglega til Bretlands með því að sigla yfir Ermarsund hefur aldrei verið meiri en nú. Það sem af er ári hafa fleiri reynt að sigla yfir Ermarsund en allt síðasta ár. Fjöldinn er nú orðinn tíu sinnum meiri en 2018. Á miðvikudag í síðustu viku stöðvuðu yfirvöld 15 báta með Lesa meira
Merci! Macron þakkar heilbrigðisstarfsfólki fyrir framlag þeirra með 1.200 milljörðum
PressanMilljörðum króna verður varið í launahækkanir til franskra hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, einnig var heilbrigðisstarfsfólk hyllt í höfuðborg Frakklands á þjóðhátíðardaginn. Þetta er „merci beaucoup” sem ekki bara heyrist, það mun einnig hafa áhrif á bankabókina. Franskir hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar munu fá launahækkun sem nemur um 30.000 íslenskum krónum á mánuði að meðaltali. Franska ríkisstjórnin og fjölmörg Lesa meira
3.000 börn voru misnotuð kynferðislega í kaþólskum kirkjum í Frakklandi
PressanSamkvæmt nýrri franskri skýrslu þá brutu að minnsta kosti 1.500 prestar og aðrir starfsmenn kaþólsku kirkjunnar kynferðislega á að minnsta kosti 3.000 börnum. Skýrsluhöfundar rannsökuðu slík mál allt aftur til 1950. Það var sérstök rannsóknarnefnd sem gerði skýrsluna og leggur hún áherslu á að líklega séu fórnarlömbin miklu fleiri. Formaður nefndarinnar, Jean-Marc Sauve, sagði á fréttamannafundi að rúmlega 1.500 Lesa meira
Vopnaðir glæpamenn taka þátt í óeirðum í Frakklandi – Forseti Tsjetsjeníu hvetur þá til dáða
PressanMörg hundruð vopnaðir meðlimir glæpagengja hafa tekið þátt í óeirðum og uppþotum í Frakklandi að undanförnu. Komið hefur til harðra átaka og eldur hefur verið borinn að bílum og ruslagámum. Ramzan Kadyrov, forseti Tsjetsjeníu, styður meðlimi glæpagengja sem hafa tekið þátt í óeirðunum í borginni Dijon og verið vopnaðir sjálfvirkum skotvopnum. The Guardian skýrir frá þessu. Óeirðirnar brutust út eftir Lesa meira
Eiffelturninn opnar á nýjan leik en lyftan verður lokuð
PressanÓhætt er að segja að Eiffelturninn sé eitt helsta vörumerki Parísar. Hann hefur verið lokaður síðan um miðjan mars vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar en nú verður breyting á. Turninn verður opnaður fyrir almenningi þann 25. júní næstkomandi. En opnunin verður með öðru sniði en áður því aðeins verður opið upp á aðra hæð og lyftan verður Lesa meira