fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Rússneskir hermenn snúast gegn Pútín – Nú berjast þeir fyrir Úkraínu

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 18:00

Rússneskir hermenn í Úkraínu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sífellt fleiri rússneskir hermenn snúa baki við Kreml og taka sér stöðu með Úkraínu á vígvellinum og berjast gegn ættjörðinni sinni.

Mörg þúsund rússneskir hermenn hafa gerst liðhlaupar í stríðinu og sumir þeirra hafa farið yfir til Úkraínu og gengið til liðs við Úkraínumenn í stríðinu gegn Rússum.

Fréttamenn sænska ríkissjónvarpsins, SVT, hittu tvo þeirra, Jevgeniy og Artjom, sem eru báðir 19 ára, á heræfingu í Úkraínu. Þeir sögðust báðir hafa aðstoðað Úkraínumenn í langan tíma með því að láta þeim í té upplýsingar um hersveitir Rússa og hergögn, síðan hafi þeir tekið skrefið til fulls og farið yfir landamærin og gengið til liðs við úkraínska herinn.

Jevgeniy sagðist hafa byrjað aðgerðir gegn löndum sínum þegar hann var á unglingsaldri en Artjom sagði að sýn hans á stríðið hafi gjörbreyst þegar hann sá myndir frá því, meðal annars frá Maríupól.

Þeir sögðust hafa skipulagt flótta sinn mjög vel í samvinnu við tengiliði sína í úkraínska hernum. Annar þeirra fékk nákvæma leiðarlýsingu sem hann fylgdi til að komast yfir til Úkraínu en hinn fékk bæði talstöð og úkraínskan einkennisbúning sendan með dróna að landamærunum.

„Úkraína er vígi frelsis, sem veitir okkur sönnum rússneskum föðurlandsvinum tækifæri til að hefna fyrir margra ára kúgun í Rússlandi,“ sögðu þeir félagar.

Rússneskir hermenn eru í sérstökum alþjóðlegum herdeildum. Í mörgum þeirra eru aðeins rússneskir ríkisborgarar en úkraínskir hermenn fylgjast náið með þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Melania vísar þessu á bug en fyrirsæta segist vita sannleikann

Melania vísar þessu á bug en fyrirsæta segist vita sannleikann
Pressan
Í gær

Frægum hundi stolið og hann borðaður

Frægum hundi stolið og hann borðaður
Pressan
Í gær

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Handtekinn eftir að hann kveikti í kynlífstækjunum í bakgarðinum

Handtekinn eftir að hann kveikti í kynlífstækjunum í bakgarðinum