fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Pressan
Fimmtudaginn 11. júní 2026 08:00

Erin Strotman. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erin Strotman, 27 ára gamall hjúkrunarfræðingur á fæðingardeild sjúkrahúss í Henrico-sýslu í Virginia, BNA, hefur verið sakfelld fyrir ofbeldi gegn níu ungabörnum og dæmd í þriggja ára fangelsi.

Erin gerði dómsátt við ákæruvaldið, játaði sök samkvæmt ákæru og situr inni í þrjú ár. Hámarksrefsing við brotum hennar er 45 ára fangelsi en ákæruvaldið féll frá því að gera þá kröfu vegna skorts á efni úr eftirlitsmyndavélum á sjúkrahúsinu og slakri skýrslugjöf þar.

Brotin voru framin á árunum 2022 til 2024 en börnin voru með brákuð bein eftir meðferð hjúkrunarfræðingsins. Hún neitar því að hafa ætlað að meiða börnin en segir að áverkarnir hafi komið til þegar hún beitti ákveðinn tækni við losa um loft í börnunum.

Innifalið í dómsáttinni er að Erin skilar inn starfsleyfi sínu og má aldrei framar starfa innan heilbrigðiskerfisins og má aldrei starfa með börnum.

Móðir eins barnsins sem varð fyrir þessum misþyrmingum var í réttarsal þegar dómur var kveðinn upp yfir Erin. Hún sagði:

„Það var góð tilfinning. Ég veit að það er illkvittið að segja þetta en núna veit ég að sú sem misþyrmdi barninu mínu er á bak við lás og slá og ég er ánægð með það.“

Erin bað fjölskyldur allra barnanna afsökunar og sagði: „Ég biðst innilega afsökunar á þeim skaða sem börnin urðu fyrir af slysni. Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar. Lengi taldi ég mig ekki vera ábyrga en í gegnum málaferlin hefur mér orðið ljóst að ég ber þarna ábyrgð og það sækir þungt á mig alla daga.“

Sjá nánar um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Nú eru fleiri eldri en 65 ára en yngri en 15 ára í Kína

Nú eru fleiri eldri en 65 ára en yngri en 15 ára í Kína
Pressan
Í gær

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“
Pressan
Í gær

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli