fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Hversu oft áttu að skipta um handklæði? – Mikill munur á afstöðu kynjanna

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 16:30

Hversu oft á að þvo þau? Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er hægt að nota handklæði allt að tíu sinnum áður en það þarf að fara í þvott. Þetta er skoðun rúmlega þriðja hvers karlmanns og fimmtu hverjar konu.

Þetta kemur fram í umfjöllun danska miðilsins Samvirke sem segir að með því að nota handklæðið tíu sinnum áður en það er sett í þvott sé verið að teygja ansi vel á þrifunum.

Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Coop Analyse gerði á síðasta ári, þá eru Danir ekki mjög samstíga í skoðun sinni á hversu oft þarf að þvo handklæði. Til dæmis sögðust 22% aðspurðra kvenna og 13% aðspurðra karla nota sama handklæðið einu sinni eða tvisvar áður en það fer í þvott.

34% karla og 22% kvenna sögðust nota handklæði sjö til tíu sinnum áður en það fer í þvott.

Samkvæmt því sem American Cleaning Institute og ensku neytendasamtökin Which? Segja, þá er í lagi að nota handklæði í eina viku áður en það er sett í þvott.

En til þess að það sé í lagi, þá þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

Að þú sért hraust(ur).

Að bara þú notir handklæðið.

Að þú gætir þess að það þorni alltaf eftir notkun.

Handklæði, sem fólk þurrkar hendurnar með, á að skipta um tvisvar eða þrisvar í viku. Handklæði, sem þú notar til að þurrka andlitið, á að fara í þvott eftir tvö skipti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Sakfelld fyrir að neyða sambýliskonu sína til vændis

Sakfelld fyrir að neyða sambýliskonu sína til vændis
Pressan
Í gær

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða
Pressan
Í gær

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“