fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Þetta ræður því hvort kvöldkaffi hafi áhrif á svefninn

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 12:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef fjölskyldan er ekki á einu máli um hvort það sé í lagi að drekka kaffi á kvöldin, þá er líklegt að báðar skoðanir eigi rétt á sér.

Eftir að kaffið hefur verið melt rýkur koffínið beint upp í heilann og þá koma erfðaefnin við sögu. Sumir eru mjög viðkvæmir fyrir koffíni og nætursvefninn fer út um þúfur er þeir drekka kaffi á kvöldin. En aðrir eru þeim hæfileikum búnir að kaffið hefur nánast engin áhrif á þá að sögn Kjeld Hermansen prófessors í næringarfræði við Kaupmannahafnarháskóla.

Það er því líffræðileg skýring á því af hverju kaffi hefur ekki sömu áhrif á alla og því er rétt að kaffidrykkja eftir kvöldmatinn er ekki góð hugmynd en það er líka rétt að kaffidrykkja eftir kvöldmatinn getur verið í góðu lagi.

Ef þú ert svo heppin(n) að tilheyra hópnum sem kaffidrykkja hefur engin áhrif á, þá getur þú haldið áfram að drekka það á kvöldin, þá skiptir það engu máli.

En ef þú finnur fyrir áhrifum af kaffidrykkju þá er best að halda sig frá því að drekka það eftir klukkan 16 eða skipta yfir í koffínlaust kaffi.

Maginn og smáþarmarnir taka koffínið upp og magnið í blóðinu er mest um 15 til 120 mínútum eftir þess var neytt. Um helmingur koffínsins brotnar niður á fimm klukkustundum. En þetta er þó mismunandi á milli einstaklinga. Um helmingur fólks hefur hraðskreitt ensím sem brýtur það niður en hinn helmingurinn hefur hægfara ensím sem sér um niðurbrotið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður
Pressan
Í gær

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast morðtilraunir: Dætur og barnabörn Pútíns flutt í víggirt setur með neðanjarðarbyrgi

Óttast morðtilraunir: Dætur og barnabörn Pútíns flutt í víggirt setur með neðanjarðarbyrgi