fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Segir frá undarlegri ökuferð með Melania Trump – „Hún var ísköld“

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 16:30

Melania Trump

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað gerir maður þegar maður neyðist til að sitja hjá einhverjum sem maður hefur ekkert að segja við? Og ekki nóg með það, því nánast allur heimurinn fylgist með manni.

Í ævisögu sinni „View From the East Wing: A memoir“ skýrir Jill Biden, eiginkona Joe Biden, frá undarlegri ökuferð með Melania Trump, eiginkonu Donald Trump.

Bild skýrir frá þessu og segir að umrædd ökuferð hafi verið farin 20. janúar 2025, daginn sem Donald Trump var settur í embætti forseta öðru sinni.

Samkvæmt hefðinni þá tóku fráfarandi forsetahjón, Joe og Jill Biden, á móti verðandi forseta og eiginkonu hans, Donald og Melania Trump, í Hvíta húsinu og buðu upp á te.

Joe Biden og Donald Trump óku saman í bíl til þinghússins en Jill Biden og Melania Trump í öðrum bíl.

Jill segir að andrúmsloftið í bílnum hafi verið ískalt.

Eins og kunnugt er neitaði Trump að viðurkenna kosningasigur Joe Biden fjórum árum áður og hafði ítrekað sagt hann vera veikburða og óhæfan til að gegna forsetaembættinu.

Kosningabaráttan var hörð fyrir síðari kosningarnar og hafði haft áhrif á eiginkonur þeirra.

„Þetta er eitt af fáum skiptum sem Melania og ég höfum hist,“ segir Jill í upphafi lýsingarinnar á ökuferðinni og bætir við að í hún hafi litið á Melania sem „ókunnuga“.

John Bessler, sem á sæti í nefndinni sem sér um innsetningu nýs forseta, var einnig með í bílnum. „Veslings John varð að finna leið til að draga úr spennunni,“ skrifar Jill.

Hún segir að hann hafi spurt Melania hvaða háskóla Barron Trump, sonur hennar og Donald, væri í. Svarið var stutt: „NYU“ (New York háskóli, innsk. blaðamanns).

Jill segir að því næst hafi Bessler spurt Melania hvort þau hjónin ættu hund. Svarið var: „Nei.“

Í þriðju tilrauninni til að koma samræðum af stað spurði hann Melania hvernig faðir hennar, Viktor, hefði það en eiginkona hans lést ekki löngu fyrir þetta.

„Hún sagði að hann hefði það gott og bætti síðan við: „En þú skilur, það er bara eitt ár síðan.““

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Sakfelld fyrir að neyða sambýliskonu sína til vændis

Sakfelld fyrir að neyða sambýliskonu sína til vændis
Pressan
Í gær

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða
Pressan
Í gær

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“