fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Barron Trump hefur haft óvænt áhrif í Bandaríkjunum

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 19:00

Barron, Melania og Donald Trump. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo er að sjá sem fjölskylda Donald Trump sé farin að hafa áhrif á óvæntu sviði í bandarísku samfélagi og þar kemur Barron, sem er yngsta barn forsetans við sögu.

Sífellt fleiri bandarískir foreldrar velja nafnið Barron fyrir syni sína en nafnið er orðið mjög þekkt þar í landi vegna fyrrgreinds Barron og það þrátt fyrir að hann forðist sviðsljósið eins og heitan eldinn.

Nýjar opinberar tölur sýna að vinsældir nafnsins hafa aukist mjög á síðustu árum. Irish Star skýrir frá þessu og segir að á síðasta ári hafi 320 drengir fengið nafnið Barron og hafa þeir aldrei verið fleiri á einu ári.

Nafnið tók stórt stökk á listanum yfir vinsælustu drengjanöfnin og hoppaði upp um mörg hundruð sæti á síðasta ári.

Buzzfeed segir að þetta sé í fyrsta sinn síðan í upphafi áttunda áratugarins sem Barron sé meðal 1.000 vinsælustu drengjanafnanna.

Þegar Barron Trump fæddist 2006 var nafnið frekar sjaldgæft í Bandaríkjunum. En það fór að breytast þegar faðir hans skellti sér í kosningabaráttuna 2015 og var síðar kjörinn forseti.

Barron er orðinn tvítugur og heldur sig eins mikið utan sviðsljóssins og hann getur og er þar með ansi ólíkur flestum öðrum fjölskyldumeðlimum sem virðast hafa mikla þörf fyrir að vera í sviðsljósinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

„Mér líkaði við hann en hann gat bara fengið fullnægingu við undarlegar aðstæður“

„Mér líkaði við hann en hann gat bara fengið fullnægingu við undarlegar aðstæður“
Pressan
Í gær

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans
Pressan
Í gær

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt
Pressan
Í gær

Frægum hundi stolið og hann borðaður

Frægum hundi stolið og hann borðaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“