fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 11. júní 2026 21:30

Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjögurra ára drengur var fluttur á spítala eftir að hafa slasast í slysi í hoppukastala. Móðir drengsins, raunveruleikastjarnan Jess Wright, fjallaði ítarlega um atvikið á Instagramsíðu sinni, má segja að lýsingarnar séu átakanlegar foreldrum ungra barna sem finnst gaman að leika sér í slíkum tækjum.

„Presley flaug upp fyrir hoppikastalann og lenti á hörðu viðargólfi úr þriggja metra hæð. Þögnin sem sló veislugestina mun ásækja mig,“ segir Wright á Instagram. Sonur hennar átti erfitt með andardrátt í fyrstu og svo leið yfir hann.

Wright og sonur hennar. Skjáskot/Instagram

„Við fórum á bláum ljósum á slysadeild í London og í sjúkrabílnum vorum við að tala um hluti eins og brotin rifbein, hryggjarskaða og jafnvel verra.“

Sonur hennar fékk að fara heim eftir nokkra klukkutíma á spítalanum og segir Wright að atvikið hafi skilið hana, sem og eiginmann hennar, í sárum. Þar að auki sé sonur hennar með hjartasjúkdóm og hafa þau hjónin fylgst vel með heilsu hans í gegnum tíðina. „Þetta var hræðilegt slys sem hefði ekki verið hægt að koma í veg fyrir en ég mun vera meira á varðbergi í framtíðinni ef hoppukastalinn er á viðargólfi en ekki á grasi eða mottu.“

Skjáskot/Instagram

Wright deildi svo fleiri myndum af syni sínum og skrifaði: „Hræðilegasti dagur lífs míns. Þakka guði fyrir að það sé í lagi með hann því það var hræðilegt að sjá hann svona.“ Þakkaði hún svo sjúkraflutningamönnum og starfsfólki Royal London Hospital.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Nú eru fleiri eldri en 65 ára en yngri en 15 ára í Kína

Nú eru fleiri eldri en 65 ára en yngri en 15 ára í Kína
Pressan
Í gær

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“
Pressan
Í gær

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli