fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

„Pútín er eins og dýr í gildru og hann mun berjast og er tilbúinn til að drepa.“

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 12:00

Vladímír Pútín. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneskt efnahagslíf er orðið háð stríðsvélinni og friðarsamningur við Úkraínu væri „langt frá því að vera vandræðalaus“.

Það er dýrt að vera í stríði en það getur verið jafn dýrt að vera ekki lengur í stríði. Það er auðvitað mótsögn í þessu en samt sem áður er þetta það sem margir sérfræðingar í rússneskum málefnum benda á núna og segja vera afleiðingu af hinu langvarandi stríði í Úkraínu.

Í grein eftir enska prófessorinn Jeremy Morris í nýjasta tölublaði Foreign Affaris færir hann rök fyrir að Rússland hafi á síðustu fjórum árum þróað „skuggaefnahag“ sem er háður stríðinu. Segir hann að þetta geri að verkum að það sé erfitt og jafnvel hættulegt fyrir Vladímír Pútín að grafa stríðsöxina og semja um frið við Úkraínu.

„Rússneska stríðsefnahagslífið er eins og risastórt olíuflutningaskip sem er hvorki hægt að stöðva né snúa við eins og er,“ sagði Morris í samtali við TV2 og bætti við: „Pútín er eins og dýr í gildru og hann mun berjast og er tilbúinn til að drepa.“

Einföld rök segja manni að það sé dýrt að standa í stríði, ekki síst efnahagslega en Morris sagði að rússneskt efnahagslíf sé nú orðið háð því að stríðið haldi áfram.

„Þeim úrræðum, sem Rússland ræður yfir, er nú beint í átt að stríðinu og þeim kostnaði sem því fylgir,“ sagði Morris.

Þetta þýðir að þrátt fyrir að útgjöldin til hersins og stríðsins séu íþyngjandi þá skapa þau ein og sér verðmæti í sumum héruðum landsins og ákveðnum hlutum samfélagsins.

Laun til hermanna og annarra starfsmanna hersins og þeirra sem vinna við hergagnaframleiðslu færa mörgum Rússum mat á borðið en um leið hefur kostnaðurinn verið mikill á vígvellinum þegar mælt er í blóði og mannslífum.

Sérfræðingar segja að einu hlutar efnahagslífsins sem ganga vel núna séu þeir sem koma á einhvern hátt að framleiðslu fyrir herinn.

Það væri því erfitt að stöðva stríðið núna því frá því að það hófst í febrúar 2022 hefur það búið til ákveðin skilyrði sem eru háð því að stríðið haldi áfram. Ef vel gengur hjá þeim hluta iðnaðarins sem framleiðir hergögn, þá gengur að minnsta kosti vel á einum stað.

Þetta þýðir um leið að draumurinn um varanlegan frið á á brattann að sækja því eftir því sem stríðið hefur dregist á langinn hefur Rússlands færst lengra frá eðlilegri samfélagsmynd og efnahagslífi.

Ef stríðinu lýkur mun það samstundis hafa mikil áhrif á atvinnuleysi, efnahagslífið og ekki má gleyma samfélagslegum áhrifum þess að allir hermennirnir koma heim því þeir eru ekki allir hreinar hetjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður
Pressan
Í gær

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast morðtilraunir: Dætur og barnabörn Pútíns flutt í víggirt setur með neðanjarðarbyrgi

Óttast morðtilraunir: Dætur og barnabörn Pútíns flutt í víggirt setur með neðanjarðarbyrgi