fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Gatið á gosdósaopnaranum býr yfir leyndri virkni

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 15:30

Gatið hefur ákveðið hlutverk.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í annríki dagsins er ekki margt betra en tilfinningin sem grípur mann þegar maður sest í sófann til að slaka á.

Margir grípa þá jafnvel eina gosdós (eða bjórdós) til að svala sér á ísköldum drykk. Án þess að hugsa neitt sérstaklega út í það taka fingurnir um opnarann á dósinni og opna hana án þess að líta neitt sérstaklega á opnarann sjálfan.

Eins og svo margt í umhverfinu okkar þá er opnarinn á dósunum afrakstur snilldarlegrar verkfræðihönnunar. Miðillinn Marieclaire skýrir frá þessu.

Málmhringurinn er hannaður þannig að hann hlífir fingrunum við að skerast. Hönnunin tryggir einnig að aflið dreifist jafnt þegar þú lyftir hringnum upp.

Síðan situr málmhringurinn fastur á dósinni sem kemur auðvitað í veg fyrir að hann endi sem rusl í náttúrunni.

Svo býr hringurinn á opnaranum yfir leyndri virkni, sérstaklega fyrir þá sem elska að nota sogrör.

Kolsýran gerir oft að verkum að sogrörið færist til og þrýstist upp og það getur auðvitað verið svolítið pirrandi.

Lausnin á þessu er innbyggð í hönnuninni á opnaranum. Það þarf bara að snúa opnaranum hálfan hring þannig að ysta gatið flútti við opið á dósinni, síðan er bara að stinga sogrörinu í gegnum gatið. Þá helst það á sínum stað, óháð því hversu mikið gos er í dósinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður

Rétt eftir að myndin var tekin gerðist hörmulegur atburður
Pressan
Í gær

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast morðtilraunir: Dætur og barnabörn Pútíns flutt í víggirt setur með neðanjarðarbyrgi

Óttast morðtilraunir: Dætur og barnabörn Pútíns flutt í víggirt setur með neðanjarðarbyrgi