fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans

Pressan
Laugardaginn 13. júní 2026 14:30

Sergei Kiriyenko og Vladímír Pútín.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svolítið áhugavert er að eiga sér stað í Rússlandi. Stjórnvöld hafa árum saman stýrt umræðunni og frásögnum um stríðið í Úkraínu. Opinberir fjölmiðlar hafa dregið upp mynd af sterkum rússneskum her, að hann sé við stjórnvölinn og algjörlega trúr og hollur stjórnvöldum.

En nú eru orðrómar farnir að breiðast út meðal þeirra sem standa næst valdhöfunum. Margir rússneskir stríðsbloggarar eru opinberlega farnir að lýsa yfir efasemdum um ráðamenn í Moskvu og vangaveltur um valdaskipti færast í aukana.

Miðillinn LA.LV segir að vaxandi órói sé meðal svokallaðra Z-bloggara en þeir eru venjulega meðal dyggustu stuðningsmanna stríðsrekstursins í Úkraínu. Margir þeirra telja að sögn að kyrrstaðan í stríðinu hafi valdið alvarlegum brestum í rússneska kerfinu.

Á miðlum eins og Dialog.ua er nú rætt opinskátt um hver verði arftaki Pútíns. Sumir halda því jafnvel fram að verið sé að „afskrifa“ Pútín af aðilum í innsta hring.

Stjórnmálaskýrendur hafa bent á að einum ákveðnum aðila sé í vaxandi mæli hampað í rússneskum ríkisfjölmiðlum.

Þetta er Sergei Kiriyenko sem er í dag fyrsti aðstoðarforstjóri forsetaskrifstofunnar en hann er talinn einn valdamesti maðurinn í Kreml.

Bloggarinn Pavel Ivanov benti á í viðtali að Kiriyenko hafi skyndilega byrjað að birtast í stórum áróðursherferðum þar sem hernaðartól eru mjög áberandi og eigi þessi áróður að tákna styrk og vald.  Ivanov sagði að ímynd Kiriyenko hafi verið nánast verið gerð að „glamúr“ í fjölmiðlum.

Á sama tíma bætir í vangavelturnar um hver stjórni Rússlandi í raun og veru, það sé hugsanlega einhver á bak við tjöldin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli