fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 19:15

Sri Lanka. Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnvöld víða í Asíu hafa gripið til umfangsmikilla sparnaðarráðstafana í orkumálum eftir að átök Bandaríkjanna og Ísraels við Íran leiddu til truflana á olíuflutningum um Hormússund.

Á Sri Lanka hefur til dæmis verið ákveðið að gera miðvikudaga að frídögum í opinbera geiranum til að draga úr eldsneytisnotkun. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá þessu. Ákvörðunin gildir þar til annað verður ákveðið.

Forseti Sri Lanka, Anura Kumara Dissanayake, sagði á fundi með háttsettum embættismönnum í gær að landið þyrfti að „undirbúa sig fyrir það versta en vona það besta“.

Þessi fjögurra daga vinnuvika mun einnig gilda um skóla og háskóla, en ekki um stofnanir sem veita nauðsynlega þjónustu, svo sem heilbrigðisgeirann.

Hormússund, sem liggur milli Persaflóa og Indlandshafs, gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegum olíuflutningum, en talið er að nærri 90 prósent þeirrar olíu og gass sem flutt var um sundið á síðasta ári hafi verið á leið til Asíu, sem er stærsta innflutningssvæði olíu í heiminum.

Yfirvöld í fleiri Asíuríkjum hafa gripið til ólíkra ráðstafana til að draga úr orkunotkun. Í Taílandi eru borgarar hvattir til að klæðast stutterma fatnaði í vinnu til að minnka þörf fyrir loftkælingu. Í Mjanmar mega einkabílar aðeins vera í notkun annan hvern dag, eftir skráningarnúmerum þeirra. Á Filippseyjum hafa sumar ríkisstofnanir gert starfsmönnum skylt að vinna að minnsta kosti einn dag í viku heiman frá sér, auk þess sem forsetinn Ferdinand Marcos yngri hefur bannað ónauðsynleg ferðalög innan opinbera geirans.

Filippseysk stjórnvöld hafa einnig kynnt fjárhagsaðstoð til ákveðinna starfshópa, þar á meðal bænda og sjómanna til að mæta áhrifum hækkandi eldsneytisverðs. Í Víetnam eru borgarar hvattir til að draga úr ferðum og nýta frekar reiðhjól, þá er fólk hvatt til að samnýta bíla og nota almenningssamgöngur ef kostur er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“
Pressan
Í gær

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríski draumurinn hefur snúist við – Nú vilja margir yfirgefa Bandaríkin

Bandaríski draumurinn hefur snúist við – Nú vilja margir yfirgefa Bandaríkin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við – Þess vegna máttu aldrei halda prumpi í þér

Læknir varar við – Þess vegna máttu aldrei halda prumpi í þér
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Dóttir mín var myrt meðan börnin sváfu – Nú þarf ég að berjast um forræðið við morðingjann“

„Dóttir mín var myrt meðan börnin sváfu – Nú þarf ég að berjast um forræðið við morðingjann“