fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 14:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Kent, fyrrverandi sérsveitarmaður í Bandaríkjaher sem svo tók að sér að verða forstjóri þjóðarmiðstöðvar gegn hryðjuverkum (e. National Counterterrorism Center), hefur sagt starfi sínu lausu vegna ákvörðunar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að hefja hernaðaraðgerðir í Íran. Kent greindi frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlinum X þar sem hann skrifaði að hann gæti ekki stutt við stríðið með góðri samvisku.

„Ég get ekki með góðri samvisku stutt yfirstandandi stríð í Íran. Íran var ekki yfirvofandi ógn gegn þjóð okkar og það liggur í augum uppi að við hófum þetta stríð að undirlagi Ísraels og öflugrar hagsmunagæslu þeirra í Bandaríkjunum.“

Kent tók fram að það hafi verið honum heiður að starfa fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta og Tulsi Gabbard, yfirmann leyniþjónustu Bandaríkjanna.

Með færslunni fylgdi afrit af afsögn Kent sem er skrifuð til forsetans. Þar sakar Kent háttsetta ísraelska embættismenn sem og valdamikla aðila úr bandarískum fjölmiðlum um falsfréttaherferð sem hafi verið ætlað að grafa undan stefnu forsetans og hvetja til stríðs gegn Íran. Kent segir í bréfi sínu til forsetans að Trump sé fastur í bergmálshelli sem hafi blekkt forsetann og sannfært hann um að Bandaríkjunum stafaði ógn frá Íran og að leiðin til sigurs væri skýr og greið.

„Þetta var lygi og er sama taktík og Íraelsmenn notuðu til að draga okkur í hörmungarstríðið í Írak sem kostaði þjóð okkar líf þúsunda af okkar bestu mönnum og konum. Við getum ekki gert þessi mistök aftur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars