fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Þess vegna lifa konur lengur en karlar

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 18:30

Fólk sér eftir ýmsu þegar það fer á eftirlaun. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekkert leyndarmál að konur lifa að meðaltali lengur en karlar. Þetta á við í flestum ríkjum heims og hefur verið svona í gegnum tíðina. Þrátt fyrir að munurinn á ævilengd karla og kvenna hafi minnkað vegna betri lífskjara og framfara í læknavísindum, benda rannsóknir til að hann muni ekki hverfa á næstunni.

Ástæðuna fyrir því að konur lifa lengur er að finna í þróunarsögu okkar og það sama á við um margar aðrar dýrategundir, kvendýrin lifa lengur en karldýrin. Hjá spendýrum lifa kvendýrin að meðaltali 12% lengur en karldýrin. Það hvernig tegundir fjölga sér skiptir miklu máli í þessu samhengi að sögn Metro.

Hjá næstum öllum spendýrum, allt frá bavíönum og górillum til manna, lifa kvendýrin að meðaltali lengur en karldýrin. Hjá mörgum fugla-, skordýra- og skriðdýrategundum er þessu öfugt farið.

Kvenspendýr eru venjulega með tvo X-litninga en karldýrin eru með einn X-litning og einn Y. Tveir X-litningar virðast veita vernd gegn skaðlegum stökkbreytingum. Hjá fuglum er þessu öfugt farið, þar eru það kvendýrin sem eru með einn Z-litnin og einn W.

Samkvæmt rannsókn, sem var birt í vísindaritinu Science Advances, þá veita tveir X-litningar ákveðið forskot hvað varðar lífslengd.

Vísindamennirnir báru saman ævilengd 1.176 fugla- og spendýrategunda í dýragörðum um allan heim. Hjá 72% af spendýrategundunum lifðu kvendýri að meðaltali 12% lengur en karldýrin. Hjá fuglunum var þessu þveröfugt farið. Hjá 68% fuglategundanna lifðu karldýrin að meðaltali 5% lengur. Það eru þó undantekningar á þessu, til dæmis hjá ránfuglum þar sem kvendýrin eru oft stærri en karldýrin og lifa lengur.

Vísindamenn segja að munurinn á ævilengd karla og kvenna sé afleiðing þróunarinnar. Erfðir, val á maka og foreldrahlutverkið vinna saman við að skapa þetta mynstur. Umhverfið getur haft áhrif á muninn en ekki eytt honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Í gær

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“