fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Ætluðu að fá sér einn bjór – Síðan hringdi mamma og fékk að vita hvað þeir höfðu gert

Pressan
Sunnudaginn 14. júní 2026 11:30

Félagarnir. Mynd:Ross Tyson/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það sem átti bara að vera rólegt kvöld breyttist í algjöra andstæðu sína hjá félögunum Ross Tyson og Callum Cook sem búa í bænum Cleethorpes á Bretlandi. Þeir hittust á uppáhaldsbarnum sínum til að fá sér einn bjór saman. En þessi eini bjór varð að ferð til Ibiza og 27 klukkustunda djammi þegar upp var staðið.

Grimsby Telegraph skýrði frá þessu. Fram kemur að þegar þeir sátu á barnum og drukku kaldan bjór hafi Tyson séð færslu á Instagram um brjáluð partý á spænsku eyjunni Ibiza. Hann leit á Cook og sagði:

„Eigum við að gera þetta?“

Það tók þá ekki langan tíma að verða ásáttir um það og keyptu þeir flugmiða samstundis og lögðu af stað í fötunum sem þeir höfðu farið í á barinn.

Þegar flugvél þeirra lenti á Ibiza hafði þeim ekki komið dúr á auga því þeir voru svo spenntir að sögn Tyson. Þeir fundu sér hótel og fóru beint í næstu matvöruverslun til að kaupa áfengi og þá var allt til reiðu til partýhalds.

Mamma hringdi

Skyndilega hringdi sími Tyson, sem er 21 árs. Það var móðir hans sem var að reyna að ná í hann.

„Ég vissi ekki hvernig mamma myndi bregðast við þessu.“

Sagði hann. Hann komst þó fljótt að því að hún var ekki alveg sátt við uppátækið.

„Hvað í fjandanum ertu að gera? Hver er með þér? Hvenær kemur þú heim?“

Öskraði hún að sögn í símann.

En það liðu 27 klukkustundir þar til þeir félagarnir lögðust til svefns og sváfu áfengisvímuna úr sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Melania vísar þessu á bug en fyrirsæta segist vita sannleikann

Melania vísar þessu á bug en fyrirsæta segist vita sannleikann
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím
Pressan
Í gær

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans
Pressan
Í gær

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rannsaka hvort TikTok-áskorun hafi átt þátt í dauða 12 ára drengs

Rannsaka hvort TikTok-áskorun hafi átt þátt í dauða 12 ára drengs
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“