
Hvað vakti fyrir manninum sem reyndi að bana embættismönnum bandarísku ríkisstjórnarinnar á hátíðarkvöldverði fréttaritara um helgina? MAGA-liðar telja að þarna hafi verið um öfgafullan vinstrimann og demókrata að ræða en það eru ekki allir á sama máli.
Ken Klippenstein er sjálfstætt starfandi blaðamaður sem heldur úti Substack-síðu en hann telur að skotmaðurinn, Cole Tomas Allen, sé hvorki vinstri- né hægrimaður, hann sé hreinlega maður sem er búinn að missa trúna á stjórnmálunum. Það sama eigi við um bæði Luigi Mangione, sem banaði forstjóra UnitedHealthcare í desember árið 2024, sem og Tyler Robinson, sem banaði áhrifavaldinum Charlie Kirk í september.
Þessir ungu menn hafi fundið fyrir gremju í garð stjórnmála og stofnana sem hafi brugðist bandarísku þjóðinni. Brugðist með því að ráðast aldrei í raunverulegar aðgerðir heldur þess í stað grípa til yfirborðskenndrar sýndarmennsku.
Kippenstein byggir þetta mat sitt á samræðum við einstaklinga sem þekkja til þessara ungu manna sem og á greiningu á færslum þeirra á samfélagsmiðlum. Hvað Cole Allen varðar skrifar blaðamaðurinn:
„Færslur hans á samfélagsmiðlum fjölluðu ekki bara um Trump. Hann sýndi þar líka mikla fyrirlitningu í garð leiðtoga demókrata“
Allen hafi lýst því yfir að þörf væri á þriðja valkostinum, enda væru hvorki demókratar né repúblikanar að standa sig gagnvart þjóð sinni. Lagði Allen til að stofnaður yrði þriðji flokkurinn sem gæti kallast: „Gerið eitthvað flokkurinn“.
Nú í mars hafi hann kallað eftir því að vantrausti yrði lýst gegn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í öldungadeildinni. Chuck Schumer.
Klippenstein skrifar:
„Svo hægt sé að kalla Allen fótgönguliða vinstrisins eða demókrata þarf að líta fram hjá mörgu því sem hann birti á netinu. Þetta er frásögn sem hentar þar sem hún stillir pólitísku ofbeldi upp sem afurð öfgakenndrar flokkspólitíkur frekar en það sem skoðanakannanir gefa í raun til kynna: hrun hefur orðið á trausti til bandarískra stofnana og forystu þeirra, þvert á flokka.“