fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Stakk 14 ára stúlku sem sagði að það væri vond lykt af honum

Pressan
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 18:00

Angel Ortiz. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður nafni Angel Ortiz, 23 ára gamall, í Abington í Pennsilvania, Bandaríkjunum, situr nú í haldi lögreglu og hefur verið ákærður fyrir hættulega líkamsárás á 14 ára stúlku.

Atvikið átti sér stað í verslunarmiðstöð þann 15. apríl síðastliðinn en lögregla kom þar á vettvang eftir tilkynningu um að maður hefði stungið unglingsstúlku með hnífi.

Ortiz fannst á strætisvagnabiðstöð um hálftíma síðar og var handtekinn. Ortiz, sem bar á sér vasahníf, sagðist bara beitt hnífnum í sjálfsvörn eftir að stúlkan réðst á hann.

Hann stakk stúlkuna í handlegginn og voru áverkar hennar ekki lífshættulegir. Hún lýsti atvikum þannig að hún og vinkonur hennar hafi verið að gantast með að þær lyktuðu illa er þær voru að fara upp rúllustiga í verslunarmiðstöðinni. Hún sagðist þá hafa snúið sér við og sagt við Ortiz, sem stóð fyrir neðan þær, að það væri ólykt af honum. Ortiz hafi þá ráðist á hana með hnífnum.

Ortiz sagði lögreglu hins vegar að hann hefði óttast um líf sitt er stúlkan réðst á hann. Myndband úr öryggismyndavél sýnir stúlkuna elta hann og slá hann. Stúlkan sagði hins vegar að Ortiz hafi manað hana til að slá sig í andlitið.

Málið er enn til rannsóknar en Ortiz kemur fyrir dómara þann 29. apríl næstkomandi.

Sjá nánar um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar