
„Klukkan var tíu að morgni. Ég vinkaði, kyssti hann og sagði að hann yrði að vera góður við ömmu.“ Þetta sagði hin breska Kerry Needham í viðtali árið 2021 þegar hún lýsti ósköp venjulegum júlímorgni árið 1991 á eyjunni Kos í Eyjahafi. Fimm klukkustundum síðar barst henni símtal sem breytti öllu. 21 mánaða sonur hennar, Ben Needham, var horfinn.
„Ég vil að allur heimurinn fái að vita að íbúar á Kos vita nákvæmlega hvað kom fyrir Ben en þeir ljúga enn og leyna því sem gerðist,“ sagði hún einnig. Árið 2016 fóru breskir lögreglumenn til Kos eftir að hafa fengið ábendingu í málinu og tilkynnti talsmaður lögreglu í framhaldinu að líklega hefði Ben litli látist af slysförum árið 1991. Þessu til stuðnings benti hann á 15 cm bút úr ljósum fatnaði sem fannst á svæðinu þar sem hann hvarf. Kerry var þó ekki sannfærð og nú bíður hún eftirvæntingafull eftir niðurstöðum úr DNA-rannsókn eftir að kona hafði samband við hana og sagðist sannfærð um að maðurinn sinn væri í raun og veru Ben.
Sjá einnig: Hvað varð um Ben?
Kærasta hins meinta Ben hafði samband við Kerry og sagðist hafa séð tölvugerða mynd af því hvernig Ben gæti litið út í dag. Myndin sé sláandi lík manni hennar sem var ættleiddur til Bandaríkjanna árið 1993 og hefur gengið illa að komast að uppruna sínum. Stofnunin sem sá um ættleiðinguna fór undan í flæmingi þegar kærastan og maðurinn reyndu að fá afhent fæðingarvottorð.
„Ég vil ekki gefa fólki falskar vonir, hvað þá Kerry, en ég er sannfærð um að hann sé Ben. Hann vonar það líka. Það eru of margar tilviljanir í þessu til þess að það sé hægt að hundsa það.“
Fréttir hafa borist af ólöglegum ættleiðingum í Bandaríkjunum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Þessar ættleiðingar hafa verið tengdar við mansal. Börnum var rænt frá foreldrum sínum af óprúttnum aðilum sem vildu hagnast á ættleiðingum og komast hjá lögum og reglum sem um þær gilda. Börnin voru gjarnan send til fjölskyldna í Bandaríkjunum sem voru tilbúnar að spyrja ekki of margra spurninga.
Kerry segist reyna að halda væntingum sínum í hófi en þar sem þessi maður sé frá Bandaríkjunum hafi hún ekki getað leitt skilaboð konunnar hjá sér.
„Næsta skrefið er vonandi að fá sýni af erfðaefni hans í gegnum Interpol. Þetta ferli getur tekið tíma en við erum þakklát fyrir að hreyfing sé aftur komin á málið og að það sé enn mögulega hægt að fá svörin sem við höfum verið að vonast eftir. Af virðingu við friðhelgi hans og velsæld ætlum við ekki að deila persónuupplýsingum um hann. Það sem skiptir mestu er að hann finni fyrir stuðningi og að hann sé verndaður í gegnum þetta ferli. Við viljum að hann viti að hann er ekki einn í þessu. Við munum áfram gera allt sem í okkar valdi stendur til að styðja hann og hjálpa við þetta ferli af eins mikilli virðingu og nærgætni og hægt er. Við viljum þakka öllum sem fylgjast með fjölskyldu okkar, styðja og láta sér annt um okkur. Við höfum oft staðið í þessum sporum áður. Þetta er kvíðavaldandi og maður er á nálum á meðan á biðinni stendur.“
Sjá einnig: Tveggja ára drengur hvarf á dularfullan hátt fyrir 26 árum – Nú hafa orðið straumhvörf í rannsókn málsins