
Harmleikur átti sér stað í Indiana í apríl á síðasta ári þegar 10 ára gamall drengur lét lífið. Drengurinn var í fóstri og hefur fósturmóðir hans, Jennifer Lee Wilson, verið ákærð fyrir manndráp af gáleysi.
Þann 25. apríl árið 2025 var lögregla kölluð að heimili Wilson eftir að tilkynning barst um meðvitundarlaust barn. Þegar lögregla kom á vettvang fundu þeir hinn 10 ára gamla Dakota Stevens, en hann var ekki með lífmörk og var með áberandi mar á hálsi og bringu. Farið var með drenginn á næsta sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn eftir að endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.
Fósturmóðir drengsins, Jennifer Wilson, sagði lögreglu að Dakota hefði strokið af heiman fyrr þennan dag. Hún fann hann svo í felum hjá nágrönnunum og ákvað að draga hann aftur heim. Hann streittist á móti og endaði með að kasta sér til jarðar fyrir utan fósturheimilið. Jennifer ákvað þá að setjast á hann til að kenna honum lexíu. Jennifer er lágvaxin kona, eða um 150 cm á hæð, en mjög þéttvaxin. Hún var um 154 kíló þegar hún settist á drenginn en hún sat á honum í um það bil fimm mínútur. Drengurinn var fáeinum sentímetrum minni en fósturmóðir sín en töluvert léttari, eða aðeins um 40 kíló.
Upptaka úr dyrasímamyndavél sýnir að Jennifer sat meðal annars á hálsi drengsins og höfði á meðan hann öskraði. Hægt og rólega fóru öskrin að minnka. Drengurinn þagnaði svo og hætti að streitast á móti. Jennifer stóð þá upp og þegar hún sá að drengurinn virtist meðvitundarlaus hélt hún að hann væri að þykjast. Svo tók hún eftir því að augnlok hans voru orðin föl. Hún bað þá annað barn á heimilinu að hringja í neyðarlínuna.
„Ertu að þykjast?“ heyrist hún spyrja lífvana drenginn. „Ég sat á honum og hann var að hegða sér illa.“
Drengurinn hafði kafnað en hann hafði líka hlotið fjöláverka. Að sögn nágrannans sem Dakota faldi sig hjá hafði hann komið hlaupandi til hennar og beðið hana um að ættleiða sig því að fósturforeldrar hans væru að beita hann ofbeldi. Jennifer hefur nú verið dæmd í sex ára fangelsi. Eins hefur leyfi hennar til að hafa börn í fóstri verið fryst og er til skoðunar að afturkalla það.