fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Segir ummæli Sigmundar Davíðs þau ljótustu sem hann hefur heyrt – Sigmundur svarar fyrir sig

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. mars 2026 13:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Jónsson almannatengill segist vona að ummæli sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lét falla í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi hafi verið sögð í hugsunarleysi.

„Ef ekki þá er þetta það ljótasta sem ég heyrt nokkurn íslenskan stjórnmálamann segja,“ sagði Andrés.

Í umræddri frétt Sýnar var sagt frá þeirri ákvörðun íslenskra stjórnvalda að taka þátt í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum. Í málinu fer Suður-Afríka fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt við skyldur sínar samkvæmt hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gaza.

Í viðtalinu sagði Sigmundur Davíð meðal annars að hann hefði ekkert á móti því að Íslendingar legðu sitt af mörkum til að rannsaka hugsanlega stríðsglæpi og refsa fyrir þá. Málið snúist um fullyrðingar um að Ísrael hafi ætlað sér að fremja þjóðarmorð.

„Hafi sú verið raunin, þá hefur þeim gengið afskaplega illa með það og maður veit ekki alveg af hverju þeir eru að senda út viðvaranir og reyna að hlífa almennum borgurum ef að það var markmiðið.“

Sigmundur hefur brugðist við ummælum Andrésar, en það gerði hann á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu.

„Það hvarflar ekki að mér að halda því fram að Andrés Jónsson sé heimskur maður. Fyrir vikið verð ég að álykta að hann geri sér það upp í pólitískum tilgangi. Ég vona að hann ráðleggi ekki skjólstæðingum sínum og pólitískum samherjum að gera slíkt hið sama. Það myndi þó skýra ýmislegt ef sú er raunin.”

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Í gær

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir
Fréttir
Í gær

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“
Fréttir
Í gær

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði