fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Sprenguárásin á stúlknaskólann í Íran – Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar ekki jákvæðar fyrir Bandaríkin

Pressan
Mánudaginn 9. mars 2026 21:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líklegt þykir að Bandaríkin beri ábyrgð á sprengjuárás á stúlknaskóla í Íran þann 28. febrúar þar sem 168 létu lífið. Þetta kemur fram í frétt CBS sem segist hafa heimildir fyrir því að samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu bandarískrar rannsóknar á atvikinu bendi margt til þess að Bandaríkin hafi líklegast verið þar að verki. Ekki hafi þó verið um viljaverk að ræða. Mögulega hafi herinn hæft skólann fyrir mistök og mögulega byggði árásin á úreltum upplýsingum frá leyniþjónustunni.

Skólinn var staðsettur nærri íranskri herstöð, í byggingu sem áður var notuð af hernum. Samkvæmt heimildarmanni CBS þykir líklegra að Bandaríkin hafi verið þarna að verki frekar en Ísraelsher.

Endanlegar niðurstöður liggja þó ekki fyrir. Heimildarmaður CBS úr ísraelsku ríkisstjórninni tekur fram að þeirra her hafi ekki verið að störfum á svæðinu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti á laugardaginn að Íran bæri ábyrgð á sprengjuárásinni.

„Við teljum að þarna hafi Íranir verið að verki því þeir eru mjög ónákvæmir með skotfæri sín, þeir hafa enga nákvæmni. Þetta var Íran,“ sagði Trump þegar hann ræddi við fjölmiðla úr forsetaflugvél sinni.

Sérfræðingar sem CBC-fréttastofan hefur rætt við hafa eins bent á að líklega sé um harmleik að ræða þar sem árásin hafi byggst á úreltum upplýsingum. Bandaríski herinn hafi ranglega talið að byggingin væri hernaðarlegt skotmark.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingur segir að þessi sitjandi staða geti valdið banvænum blóðtappa

Sérfræðingur segir að þessi sitjandi staða geti valdið banvænum blóðtappa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stundaði kynlíf með eineggja tvíburum – Ekki hægt að skera úr um faðernið

Stundaði kynlíf með eineggja tvíburum – Ekki hægt að skera úr um faðernið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingar segja að stresseinkenni komi fram í svefnherberginu og baðherberginu

Sérfræðingar segja að stresseinkenni komi fram í svefnherberginu og baðherberginu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár