fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Ertu nokkuð að gleyma þér? – Síðasti dagurinn til skila er í dag

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 13. mars 2026 15:30

Ekki gleyma þér! Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skilafrestur fyrir skattframtal einstaklinga árið 2026, vegna tekna á árinu 2025, er í dag, 13. mars. Hafi fólk ekki skilað því fyrir lok dags verður skatturinn áætlaður.

Skattframtalið var opnað þann 27. febrúar til að skila framtali á þjónustuvef Skattsins. Allar helstu upplýsingarnar eru foráritaðar í framtalinu. Þurfa einstaklingar því að yfirfara upplýsingarnar, bæta við ef eitthvað vantar og staðfesta að lokum.

Allir einstaklingar sem urðu að minnsta kosti 16 ára á árinu 2025 þurfa að skila framtali. Hægt er að nota bæði rafræn skilríki og veflykil til þess að auðkenna sig á síðu Skattsins.

Fagaðilar, svo sem bókarar og endurskoðendur, hafa lengri frest en einstaklingar. Það er til 15. apríl.

Skatturinn veitir aðstoð í síma 442-1414 og tekur á móti fyrirspurnum á netfanginu framtal@skatturinn.is. Bent er á að spjallmennið á heimasíðunni skatturinn.is getur einnig svarað alls kyns spurningum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Í gær

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir
Fréttir
Í gær

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“
Fréttir
Í gær

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði