Þessu til viðbótar verða 1.000 norðurkóreskir verkfræðingar, frá hernum, einnig sendir til Kúrsk.
The Independent skýrir frá þessu og segir að Shoigu hafi sagt að mennirnir muni aðstoða við endurbyggingu héraðsins. Úkraínumenn réðust inn í það í ágúst á síðasta ári og það var ekki fyrr en á þessu ári sem Rússum tókst að hrekja þá þaðan að mestu.
Shoigu ræddi þetta mál við Kim Jong Un, einræðisherra í Norður-Kóreu, á fundi í síðustu viku. Fundurinn fór fram í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, í tengslum við heimsókn Shoigu þar.