fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Pressan

Hefur heimsótt allar höfuðborgir Evrópu – Segir að þessar þrjár séu stórlega ofmetnar

Pressan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 09:30

Helsinki kemst á listann. Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dale Peterson, sérfræðingur í ferðalögum, segir mikilvægt fyrir áhugasama ferðalanga að velja áfangastaði sína af kostgæfni.

Dale hefur heimsótt allar höfuðborgir Evrópu og segir hann í samtali við Business Insider, sem Mail Online vitnar meðal annars til, að hann myndi ekki endilega flýta sér aftur til þriggja þeirra sem þó njóta töluverðra vinsælda.

París, Lissabon og Barcelona eru vinsælar og þó að þær standi undir væntingum eru einnig minna þekktir áfangastaðir sem bjóða upp á ákveðinn sjarma og hagkvæmni. Nefnir hann til dæmis Búkarest í Rúmeníu og Vilníus í Litáen.

En þrjár borgir hafa valdið Dale ákveðnum vonbrigðum eins og útlistað er nánar hér að neðan.

London, Bretland

Þó að London bjóði upp á konungleg kennileiti, heimsklassa söfn, leikhúsin á West End og einstaka blöndu af sögu og nútímaleika, segir Dale að breska höfuðborgin hafi aldrei náð að heilla hann að fullu.

„Þó borgin sé án efa táknræn og hafi margt fram að færa – eins og ótrúleg söfn með ókeypis aðgangi og fjölbreytta matarmenningu – finnst mér London vera ofmetin og dýr, sérstaklega í samanburði við öll hin áhugaverðu svæðin í Bretlandi.“

Dale bætir við að stærð borgarinnar og kostnaður geti verið yfirþyrmandi, sérstaklega þegar það eru friðsælli og jafn fallegir staðir víðs vegar um Bretland.

Hann segist kjósa að eyða tíma sínum í Cotswolds eða Lake District – eða ferðast til Skotlands til að upplifa gotneska byggingarlist Edinborgar og gróft landslag hálendisins.

Amsterdam, Holland

Amsterdam er oft lýst sem einni af heillandi höfuðborgum Evrópu, með sín myndrænu síki, sögulegu hús og tiltölulega afslappaða menningu hjólreiða.

Þrátt fyrir að höfuðborg Hollands taki á móti milljónum ferðamanna ár hvert fannst Dale miðbær borgarinnar vonbrigði.

Hann segir: „Því miður fannst mér miðbærinn eins og fokdýr skemmtigarður, fullur af minjagripaverslunum og mannmergð.“

Þó honum hafi fundist gaman að rölta um róleg hverfi utan fjölförnustu svæða miðborgarinnar, segir hann borgina í heildi skorta ekta stemningu sem hann leitar að á áfangastöðum sem hann vill heimsækja aftur.

Helsinki, Finnland

Helsinki hefur upp á ýmislegt að bjóða en að mati Dale ekki nægilega mikið til að hann hafi áhuga á að koma aftur.

„Borgin er dálítið of dauðhreinsuð, vantar fjör og spennandi afþreyingu,“ segir hann og bætir við að eftir að hafa skoðað helstu ferðamannastaðina á einum degi hafi hann átt erfitt með að finna eitthvað að gera í borginni.

Hann mælir frekar með öðrum höfuðborgum Norðurlandanna, eins og Kaupmannahöfn og Stokkhólmi, sem Dale segir bjóða upp á meiri lífsgleði, menningu og fjölbreyttari afþreyingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“
Pressan
Í gær

Ný lög í Texas kveða á um að Boðorðin tíu verði að vera sýnileg í öllum skólastofum

Ný lög í Texas kveða á um að Boðorðin tíu verði að vera sýnileg í öllum skólastofum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífsfræðingar skýra frá undarlegustu spurningunum sem þeir hafa fengið

Kynlífsfræðingar skýra frá undarlegustu spurningunum sem þeir hafa fengið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump urðar yfir þingmann repúblikana sem gagnrýndi árásina á Íran – „Aumkunarverður AUMINGI“

Trump urðar yfir þingmann repúblikana sem gagnrýndi árásina á Íran – „Aumkunarverður AUMINGI“