Pavel, sem er fertugur, lýsti þessu í viðtali við Le Point-tímaritið í Frakklandi. Durov er faðir sex barna sem hann á með þremur konum, en þar sem hann hefur verið duglegur að gefa sæði á hann um hundrað börn til viðbótar í fjölmörgum löndum. Fimmtán ár eru síðan hann byrjaði að gefa sæði.
„Ég vil taka fram að ég geri engan greinarmun á börnunum mínum: Sum þeirra voru getin á náttúrulegan hátt en önnur eru afrakstur sæðisgjafa minna,“ sagði hann í viðtalinu.
„Þau eru öll börnin mín og munu öll hafa sömu réttindi. Ég vil ekki að þau rífist sín á milli eftir dauða minn,“ sagði Pavel. Hann segir að börnin muni ekki geta fengið aðgang að sjóðum hans fyrr en 30 árum eftir útgáfu erfðaskrárinnar.
„Ég vil að þau lifi eins og venjulegt fólk, byggi sig sjálf upp, læri að treysta á eigin getu, læri að skapa og verði ekki háð bankareikningi,“ sagði hann.
Telegram er eitt vinsælasta en jafnframt umdeildasta samskiptaforrit heims, en öflug dulkóðun gerir það að verkum að forritið er vinsælt í undirheimunum. Er hann til dæmis til rannsóknar í Frakklandi.
Þegar hann var spurður hvers vegna hann hefði ákveðið að semja erfðaskrá núna svaraði hann því til að starf hans feli í sér mikla áhættu. „Að berjast fyrir frelsi færir manni marga óvini, þar á meðal innan valdamikilla ríkja,“ segir hann.