fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Pressan

Var bandaríska varnarmálaráðuneytið hakkað? Eða eru Rússar komnir með yfirráð yfir Bandaríkjunum?

Pressan
Mánudaginn 16. júní 2025 07:00

Umrædd mynd. Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Heiðrum merki þjóðarinnar og stjörnurnar og rendurnar sem sameina okkur öll. Þegar við sýnum þjóðfánann og hugleiðum þau gildi sem hann táknar, fögnum þá frelsinu, hugrekkinu og seiglunni sem gerir landið okkar stórt,“ sagði í færslu bandaríska varnarmálaráðuneytisins á samfélagsmiðlum á laugardaginn.

En á myndinni sem ráðuneytið deildi er svolítið sem margir telja líkjast rússneska fánanum.

Garry Kasparov, fyrrum heimsmeistari í skák og Rússi, er yfirlýstur andstæðingur einræðisstjórnar Pútíns og er ekki feiminn við að gagnrýna Pútín.

Myndin vakti athygli hans og skrifaði hann á X um málið: „Var bandaríska varnarmálaráðuneytið hakkað og tveimur rússneskum fánum bætt við eða er vanþekking Trump-stjórnarinnar svo mikil allt niður á lægstu stig?“

Á miðri myndinni sést, vegna litanna, það sem líkist tveimur rússneskum fánum sitt hvorum megin við stjörnurnar.  En það er rétt að hafa í huga að litirnir passa einnig við litina í bandaríska þjóðfánanum.

Margir aðrir hafa veitt þessu athygli og hafa skemmt sér vel yfir þessu.

„Eru Bandaríkin opinberlega orðin „oblast“ (hérað í Rússlandi, innsk. blaðamanns). Er það, það sem er í gangi,“ skrifaði einn.

„Er þetta hróp á hjálpar, er ykkur haldið föngnum af Rússlandi? Setjið tvo rússneska fána í viðbót til að segja já,“ skrifaði annar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu
Pressan
Í gær

Hún elskaði þá, myrti og hirti tryggingaféð – Saga Svörtu ekkjunnar sem var þó ekki alslæm

Hún elskaði þá, myrti og hirti tryggingaféð – Saga Svörtu ekkjunnar sem var þó ekki alslæm
Pressan
Í gær

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)
Pressan
Fyrir 2 dögum

Er þögn góð fyrir þig?

Er þögn góð fyrir þig?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sat líka í sæti 11A og lifði af flugslys þar sem yfir 100 fórust

Sat líka í sæti 11A og lifði af flugslys þar sem yfir 100 fórust
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dóttir Ásu og Rex skipti um skoðun áður en heimildarþættirnir fóru í loftið – Þessu trúir hún í dag í ljósi staðreynda málsins

Dóttir Ásu og Rex skipti um skoðun áður en heimildarþættirnir fóru í loftið – Þessu trúir hún í dag í ljósi staðreynda málsins