fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Pressan

Hjónin heyrðu neyðaróp fyrir aftan sig – Myndin varpar ljósi á örvæntinguna

Pressan
Miðvikudaginn 5. nóvember 2025 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ung stúlka getur þakkað hetjulegum viðbrögðum hjóna fyrir að ekki hafi farið illa þegar sætisbelti hennar losnaði í rússíbana í skemmtigarði í Kansas City.

Atvikið átti sér stað þann 11. október síðastliðinn í Mamba-rússíbananum í Worlds of Fun-skemmtigarðinum. Rússíbaninn nær allt að 120 kílómetra hraða en sætisbelti stúlkunnar losnaði strax í fyrstu brekkunni.

Chris og Cassie Evins, sem sátu í sætinu fyrir framan, sögðust hafa heyrt neyðaróp stúlkunnar og í fyrstu talið að hún væri óvön því að fara í rússíbana.

Aldrei heyrt annað eins

„Ég hef aldrei heyrt svona skræki áður,“ segir Chris í frétt KCTV5 í Bandaríkjunum. Hann áttaði sig á að ekki var allt með felldu þegar stúlkan hrópaði að beltið hennar hefði losnað.

„Ég vafði handleggnum undir öryggisgrindina, bilið á milli hennar og grindarinnar var ansi stórt. Ég vafði handleggnum undir grindina og greip um úlnlið hennar á meðan Cassie þrýsti niður fótunum á henni.“

Hjónin eru með árskort í garðinum og þekkja þennan rússíbana vel og vissu þau að fram undan væru brekkur og beygjur sem hefðu auðveldlega getað fleygt stúlkunni úr sætinu ef ekkert yrði gert.

„Við færðum okkur til þannig að í stað þess að halda henni bara, þrýstum við niður á allan líkamann hennar til að koma í veg fyrir að hún lyftist úr sætinu þegar við fórum upp og niður brekkurnar,“ sagði Chris.

Örvæntingin sást greinilega

Að sögn fjölmiðla tókst Evins-hjónunum að halda stúlkunni öruggri þar til rússíbaninn stöðvaði.

Myndavél við tækið, sem venjulega fangar gleðióp farþega, sýndi að þessu sinni örvæntingarfull andlit hjónanna og logandi hrædda stúlku sem augljóslega óttaðist mjög um líf sitt.

Eftir ferðina tilkynntu þau atvikið tafarlaust til starfsfólks garðsins og var rússíbaninn lokaður á meðan öryggisskoðun fór fram.

Daily Mail vísar í frétt Kansas City Star þar sem fram kemur að síðasta reglubundna skoðun Mamba hafi farið fram þann 25. apríl síðastliðinn.

Eftir atvikið þann 11. október voru gerðar nokkrar viðbótarskoðanir, þar á meðal 30. október, þar sem nokkur belti eru sögð hafa fundist sem voru ekki í fullkomnu lagi, að sögn Mike O’Connell, talsmanns öryggismála í Missouri. Talsmaður skemmtigarðsins segir að búið sé að bregðast við öllum athugasemdum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi eiginkonur loddara og raðeltihrellis tóku höndum saman til að vara aðrar konur við – „Ekki byrja með Brandon“

Fyrrverandi eiginkonur loddara og raðeltihrellis tóku höndum saman til að vara aðrar konur við – „Ekki byrja með Brandon“
Pressan
Fyrir 2 dögum

13 ára gömlum var honum rænt af heimili sínu, pyntaður í 43 tíma og svo skotinn í bakið – lifði af en situr eftir stórskuldugur

13 ára gömlum var honum rænt af heimili sínu, pyntaður í 43 tíma og svo skotinn í bakið – lifði af en situr eftir stórskuldugur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Starfsmaður veitingastaðar dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir ógeðslegt athæfi

Starfsmaður veitingastaðar dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir ógeðslegt athæfi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það sem virtist vera sorglegt umferðarslys breyttist í morðrannsókn – Lá í dái í þrjá mánuði og sagði lögreglu hvað gerðist

Það sem virtist vera sorglegt umferðarslys breyttist í morðrannsókn – Lá í dái í þrjá mánuði og sagði lögreglu hvað gerðist
Pressan
Fyrir 5 dögum

Efnuð hjón töldu sig hafa fundið draumabarnapíuna en hún reyndist vera þeirra versta martröð

Efnuð hjón töldu sig hafa fundið draumabarnapíuna en hún reyndist vera þeirra versta martröð
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ætlaði að koma fyrrverandi kærustunni á óvart og faldi sig inn í skáp – Það endaði með blóðbaði

Ætlaði að koma fyrrverandi kærustunni á óvart og faldi sig inn í skáp – Það endaði með blóðbaði
Pressan
Fyrir 6 dögum

Læknar voru sannfærðir um að hann væri á eiturlyfjum, þangað til þeir kíktu í eyrað á honum

Læknar voru sannfærðir um að hann væri á eiturlyfjum, þangað til þeir kíktu í eyrað á honum